Fara í innihald

Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Katrín Halldóra Sigurðardóttir (f. 4. júlí 1989) er íslensk leikkona. Hún vakti mikla athygli er hún lék söngkonuna Ellý Vilhjálms í söngleiknum Ellý sem sýndur var í Borgarleikhúsinu frá 2017-2019.

Katrín ólst upp í Mosfellsbæ til tíu ára aldurs en þá flutti hún ásamt fjölskyldu sinni til Neskaupsstaðar. Foreldrar hennar eru Sigurður Rúnar Ragnarsson sóknarprestur í Neskaupsstað og Ragnheiður Kristín Hall sem starfar á skrifstofu Síldarvinnslunnar. Katrín á tvö eldri systkini sem bæði eru lögfræðingar. Hún er gift Hallgrími Jóni Hallgrímssyni skógarhöggsmanni hjá Reykjavíkurborg og trommuleikara í hljómsveitinni Sólstafir. Þau eiga einn son fæddan árið 2020 og einnig á Katrín stjúpson.

Katrín Halldóra stundaði söngnám í Danmörku og var söngnemandi á djass- og rokkbraut í Tónlistarskóla FÍH. Hún útskrifaðist sem leikkona frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2015. Að lokinni útskrift lék hún um tíma í Þjóðleikhúsinu, m.a. í Hróa Hetti en varð síðar fastráðin leikkona í Borgarleikhúsinu til ársins 2021[1] er hún gekk aftur til liðs við Þjóðleikhúsið.[2]

Hún hefur m.a. leikið í Ófærð (2015), kvikmyndinni Lof mér að falla (2018) og í Áramótaskaupum 2016 og 2018.[3]

Þekktasta hlutverk Katrínar er án efa hlutverk söngkonunnar Ellýjar Vilhjálms í söngleiknum Ellý sem frumsýndur var 18. mars 2017. Sýningin sló aðsóknarmet í Borgarleikhúsinu frá 2017-2019 og var sýnd alls 220 sinnum fyrir 105.000 áhorfendur.[4] Katrín fékk mikið lof fyrir hlutverk sitt og þótti jafnframt sláandi lík Ellý Vilhjálms. Silja Björk Huldudóttir leikhúsgagnrýnandi Morgunblaðsins sagðist ekki eiga „nógu sterkt orð til að lýsa magnaðri túlk­un Katrín­ar á Elly, annað en að hér er aug­ljóst að stjarna er fædd.“[5] Katrín hlaut Íslensku sviðslistaverðlaunin Grímuna sem söngkona ársins árið 2017 fyrir hlutverk sitt sem Ellý.[6]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Visir.is, „Verð alltaf sveitastelpa“ (skoðað 5. janúar 2021)
  2. ↑ Visir.is, „Katrín Halldóra til liðs við Þjóðleikhúsið“ (skoðað 8. júní 2021)
  3. ↑ imdb.is, „Katrín Halldóra Sigurðardóttir“ (skoðað 5. janúar 2021)
  4. ↑ Visir.is, „Áhorfendametið fallið og lokasýning í kvöld: „Ég held að Ellý verði alltaf nálægt manni““ (skoðað 5. janúar 2021)
  5. ↑ Silja Björk Huldudóttir, „Stjarna er fædd“, Mbl.is (skoðað 5. janúar 2021)
  6. ↑ Mbl.is, „11 sýningar verðlaunaðar“ (skoðað 5. janúar 2021)