Handknattleiksárið 1969-70
Handknattleiksárið 1969-70 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1969 og lauk sumarið 1970. Framarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og einnig í kvennaflokki. Karlalandsliðið tók þátt í HM í Frakklandi og hafnaði í 11. sæti af 16 þjóðum.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla. Keppt var í sex liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 17 |
Haukar | 13 |
FH | 13 |
Valur | 9 |
Víkingur | 4 |
KR | 4 |
KR féll í 2. deild eftir aukaleik við Víking.
Aukaleikur um fall
- Víkingur - KR 18:13
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]ÍR sigraði í 2. deild og tók sæti KR í 1. deild. Keppt var í tveimur riðlum, Suðurlandsriðli og Norðurlandsriðli.
Suðurlandsriðill
- Ármann, ÍR, Þróttur, Breiðablik, Grótta, Keflavík og Akranes kepptu í Suðurlandsriðli.
Norðurlandsriðill
- KA, Þór Ak. og Dalvík kepptu í Norðurlandsriðil. Leikin var einföld umferð.
Úrslit
- ÍR - KA 35:23
- KA - ÍR 21:30
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]FH keppti í Evrópukeppni meistaraliða. FH-ingar hófu keppni í 16-liða úrslitum en töpuðu fyrir ungverska liðinu Honved Búdapest.
16-liða úrslit
- Honved Búdapest - FH 28:17
- FH - Honved Búdapest 17:21
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Íslenska karlalandsliðið í handknattleik komst á HM í Frakklandi með því að vinna sigur á Austurríkismönnum í forkeppni.
Leikir um HM-sæti
- Ísland - Austurríki 28:10
- Austurríki - Ísland 21:20
Oddaleikur
- Austurríki - Ísland 12:22
HM í Frakklandi hófst í lok febrúar 1970. Ísland var í riðli með Dönum, Pólverjum og Ungverjum. Ísland hafnaði í þriðja sæti í riðlinum og lék um 9.-12. sæti.
Forriðill
- Ísland - Ungverjaland 9:19
- Ísland - Danmörk 13:19
- Ísland - Pólland 21:18
Keppni um 9.-12. sæti
- Ísland - Japan 19:20
- Ísland - Sovétríkin 15:19
- Ísland - Frakkland 19:17
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna, eftir 11:9 sigur á Valsstúlkum í lokaleik. Keppt var í sex liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 19 |
Valur | 17 |
Víkingur | 10 |
KR | 7 |
Ármann | 7 |
Breiðablik | 0 |
Breiðablik féll í 2. deild.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Njarðvík sigraði í 2. deild. Keppt var í þriggja liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Njarðvík | 7 |
ÍBK | 3 |
FH | 2 |
Fallið var frá því að halda úti sérstökum Norðurlandsriðli í 2. deild, en liðin þess í stað skráð til keppni í Íslandsmóti 1. flokks. Völsungur frá Húsavík varð Íslandsmeistari í 1. flokki með talsverðum yfirburðum, sigraði t.d. Val 8:2 í úrslitum í Laugardalshöll. Hefði liðið því væntanlega orðið sigurstranglegt í 2. deild.
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]Valur keppti í Evrópukeppni meistaraliða. Valsstúlkur hófu keppni í 16-liða úrslitum en töpuðu fyrir pólska liðinu AZS AWF Wrocław.
16-liða úrslit
- Valur - AZS AWF Wrocław 12:19
- AZS AWF Wrocław - Valur 11:13