Handknattleiksárið 1961-62
Handknattleiksárið 1961-62 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1961 og lauk sumarið 1962. Framarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Valskonur í kvennaflokki. Engir landsleikir fóru fram á tímabilinu.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla eftir sigur á FH í lokaleik. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 9 |
FH | 8 |
ÍR | 6 |
Víkingur | 3 |
KR | 2 |
Valur | 2 |
KR og Valur léku aukaleik um fall í 2. deild.
Leikur um 5. sæti
- KR - Valur 21:16
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Þróttarar sigruðu í 2. deild á fullu húsi stiga og tryggðu sér sæti í 1. deild. Leikin var einföld umferð í sex liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
Þróttur | 10 |
Haukar | 8 |
Ármann | 6 |
ÍA | 4 |
ÍBK | 2 |
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Valskonur urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna eftir jafntefli gegn FH í lokaleik mótsins. Leikin var einföld umferð í sex liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 8 |
FH | 6 |
Ármann | 5 |
Víkingur | 5 |
KR | 4 |
Fram | 2 |
Framarar höfnuðu í neðsta sæti og áttu að falla niður í 2. deild. Vegna þátttökuleysis var aðeins leikið í einni deild leiktíðina 1962-63 og hélt liðið því sæti sínu.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í 2. deild kvenna í fyrsta sinn. Breiðablik sigraði og tryggði sér sæti í 1. deild. Leikin var einföld umferð í þriggja liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
Breiðablik | 4 |
Þróttur | 1 |
ÍBK | 1 |
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Engir landsleikir fóru fram á tímabilinu.