Gotneskt þungarokk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Goth-metall, (e. gothic metal) er ein af undirstefnum þungarokks og er talið hafa orðið vinsælt árið 1991 þegar „Paradise Lost“ gaf út plötuna sína „Gothic“. Gotneska þungarokkið er stefna skyld hefðbundinni gotneskritónlist og einkennist af þrassi og þungarokki. Efnið sem notast er við í gotneskt þungarokk er oftast trúarbrögð, goðsagnir, hrollvekja, sársauki og vonleysi, dauði og þunglyndi. Samt einkennast þessi þemu stundum af rómantík og tilfinningaríkri ást.

  Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.