Flokkunarkerfi Aarne-Thompson
Flokkunarkerfi Aarne-Thompson er flokkunarkerfi fyrir þjóðsögur, ævintýri og sagnir byggt á söguefnum og minnum sem koma fyrir aftur og aftur. Flokkunarkerfið var upphaflega búið til af finnska þjóðfræðingnum Antti Aarne og kom út í litlu kveri árið 1910. Síðar var það þróað áfram af bandaríska þjóðfræðingnum Stith Thompson sem gaf út hina miklu gerðaskrá sína árið 1961 með upptalningu á yfir 2500 númeruðum sagngerðum. Númerakerfið er oft notað til að flokka þjóðsögur og sagnir með svokölluðum AT-númerum (eftir Aarne og Thompson). Vladimír Propp gagnrýndi þessa flokkunaraðferð á 3. áratug 20. aldar fyrir að líta framhjá virkni söguefnisins.
Árið 2004 gaf þýski þjóðsagnafræðingurinn Hans-Jörg Uther út uppfærða og alþjóðavædda útgáfu af flokkunarkerfinu. Eftir það er algengast að vísa í ATU-númer fyrir flokkunarkerfið.
Sagngerðir og dæmi um flokkun
[breyta | breyta frumkóða]Dýrasögur
- Villt dýr 1-99
- Villt dýr og húsdýr 100-149
- AT124 Grísirnir þrír
- Villt dýr og menn 150-199
- Húsdýr 200-219
- Önnur dýr og hlutir 220-299
Ævintýri
- Yfirnáttúrulegir andstæðingar 300-399
- AT310 Garðabrúða (ævintýri)
- AT327A Hans og Gréta
- Yfirnáttúrulegir ættingjar eða í álögum 400-459
- AT410 Þyrnirós (ævintýri)
- Yfirnáttúruleg verkefni 460-499
- Yfirnáttúrulegir aðstoðarmenn 500-559
- Töfragripir 560-649
- AT561 Alladín og töfralampinn
- Yfirnáttúrulegir hæfileikar eða þekking 650-699
- Aðrar sögur um hið yfirnáttúrulega 700-749
Trúarsagnir
- Guð launar og refsar 750-779
- AT777 Gyðingurinn gangandi
- Sannleikurinn kemur í ljós 780-791
- Himnaríki 800-809
- Fjandinn 810-826
- Aðrar trúarsögur 827-849
Raunsæjar sögur eða smásögur
- Maður giftist konungsdóttur 850-869
- AT853 Hans klaufi
- Kona giftist konungssyni 870-879
- Trúmennska og sakleysi sannað 880-899
- Þrjósk kona lærir að hlýða 900-909
- AT900 Þrastarskeggur konungur
- Góðar lífsreglur 910-919
- Snjöll orð og athafnir 920-929
- Forlagasögur 930-949
- AT930 Ödipus konungur
- Ræningjar og morðingjar 950-969
- Aðrar raunsæjar sögur 970-999
Sögur um heimsku risa, trölla eða púka
- Starfssamningur 1000-1029
- Félag manns og risa 1030-1059
- Keppni milli manns og risa 1060-1114
- Maður drepur eða særir risa 1115-1144
- Maður hræðir risa 1145-1154
- Maður snýr á kölska 1155-1169
- Sálum bjargað frá kölska 1170-1199
Gamansögur
- Sögur um kjána 1200-1349
- Sögur um hjón 1350-1439
- Sögur um konur 1440-1524
- Sögur um karla 1525-1724
- AT1620 Nýju fötin keisarans
- AT1635* Ugluspegill
- Gamansögur um klerka 1725-1849
- Gamansögur um aðra hópa fólks 1850-1874
- Ýkjusögur 1875-1999
Formúlusögur
- Endurtekningasögur 2000-2100
- AT2035 Gamla myllan (This is the house that Jack built)
- Gildrusögur 2200-2299
- Aðrar formúlusögur 2300-2399
Óflokkað
- Óflokkaðar sögur 2400-2499
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Verzeichnis der Märchentypen eftir Antti Aarne.