1574
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |


Árið 1574 (MDLXXIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Fermingar teknar upp fyrir tilstilli Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups.
- Konungsbréf gefið út um að Alþingi skyldi flutt frá Þingvöllum í Kópavog. Af því varð þó ekki.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Jón lærði Guðmundsson, fræðimaður (d. 1658).
- Björn Jónsson á Skarðsá, annálaritari (d. 1655).
- Kristín Guðbrandsdóttir, húsfreyja í Ögri (d. 1652).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 29. janúar - Áttatíu ára stríðið - Spánverjar misstu 15 skip og 1.200 menn í sjóorrustu við Hollendinga og Englendinga undan ströndum Hollands.
- 23. febrúar - Fimmta trúarbragðastríðið gegn húgenottum hófst í Frakklandi.
- 2. mars - Svíar misstu um 1.000 hermenn við að reyna að endurheimta Wesenberg-kastala í Eistlandi frá Rússum.
- 30. maí - Hinrik af Anjou, nýlega kjörinn konungur Póllands, varð Hinrik 3. Frakkakonungur þegar Karl 9. bróðir hans lést. Móðir þeirra, Katrín af Medici, stýrði ríkinu þar til Hinrik sneri aftur frá Póllandi.
- 13. september - Ottómanveldið náði yfirhöndum í Túnis sem var á valdi Heilaga rómverska ríkið heilaga rómverska ríkisins.
- 22. nóvember - Juan Fernández-eyjar í Kyrrahafi voru uppgötvaðar af Spánverjanum Juan Fernández.
- 27. desember Múrad III varð soldán Ottómanveldisins eftir að hafa drepið 4 bræður sína.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Borgin Ufa var reist að skipan Ívans grimma sem virki til að verja verslunarleið yfir Úralfjöllin frá Kazan.
- Bygging Krónborgarhallar við Eyrarsund hófst.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 6. maí - Innósentíus 10. páfi (d. 1655 ).
- 13. ágúst - Samuel de Champlain, franskur landkönnuður (d. 1635)
- 14. október - Anna af Danmörku, drottning Skotlands og síðar Englands, kona Jakobs 6. (Jakobs 1.) (d. 1519).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 21. apríl - Kosímó I stórhertogi af Toskana (f. 1519).
- 30. maí - Karl 9. Frakkakonungur (f. 1550).
- 27. júní - Giorgio Vasari ítalskur listmálari, arkitekt og ævisagnaritari (f. 1511).