Æðplöntur
Útlit
(Endurbeint frá Æðaplöntur)
Æðplöntur | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Burknar, eins og þessi skollakambur eru einn af núlifandi hópum æðplantna.
| ||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||
| ||||||
Fylkingar | ||||||
Frælausar æðplöntur
|
Æðplöntur (latína: Tracheophyta; enska: Vascular plants) eða háplöntur[1] eru hópur plantna sem eiga það sameiginlegt að hafa trjákennda vatnsflutningsvefi með ligníni. Æðplöntur hafa líka sáldvef sem sér um að flytja ljóstillífunarafurðir um plöntuna.
Æðplöntur eru stærsti hópur plantna með um 300.000 þekktar tegundir. Meðal núlifandi æðplantna eru blómplöntur, berfrævingar, burknar, elftingar og jafnar.
Sumar frumstæðar plöntur, t.d. Rhyniophyta, höfðu æðstrengi sem ekki voru fullmótaðir. Þær teljast til æðplantna en til að greina þær frá hefur vísindaheitið Eutracheophyta verið notað yfir æðplöntur þar sem þær þróunarfræðilega elstu hafa verið greindar frá.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Náttúrufræðistofnun Íslands (án árs). Æðplöntur. Sótt þann 6. apríl 2021.