Óflekkað mannorð
Útlit
Óflekkað mannorð er hugtak í íslenskum lögum sem skilgreint er í 5. gr. laga um kosningar til Alþingis [1] frá árinu 2000:
- „Enginn telst hafa óflekkað mannorð sem er sekur eftir dómi um verk sem er svívirðilegt að almenningsáliti nema hann hafi fengið uppreist æru sinnar.“
- „Dómur fyrir refsivert brot hefur ekki flekkun mannorðs í för með sér nema sakborningur hafi verið fullra 18 ára að aldri er hann framdi brotið og refsing sé fjögurra mánaða fangelsi óskilorðsbundið hið minnsta eða öryggisgæsla sé dæmd.“
Störf og embætti
[breyta | breyta frumkóða]Óflekkaðs mannorðs er samkvæmt íslenskum lögum krafist af öllum þeim er gegna og/eða hafa heimild til eða sækjast eftir eftirfarandi embættum og störfum. [2]
- Kjörgengi til Alþingis (34. gr. [3] stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33 17. júní 1944)
- Kjörgengi í Landsdóm (3. gr. [4] laga um landsdóm nr. 3 19. febrúar 1944)
- Lögmaður (6. gr. [5] laga um lögmenn nr. 77 15. júní 1998)
- Embætti ríkissáttasemjara (20. gr. [6] laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 11. júní 1938)
- Embætti dómara í Félagsdómi (42. gr. [7] laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 11. júní 1938)
- Heimild til að reka mál fyrir félagsdómi (46. gr. [8] laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 11. júní 1938)
- Gerðarmenn (6. gr. [9] laga um samningsbundna gerðardóma nr. 53 24. maí 1989)
- Embætti Matsmanns (18. gr. [10] laga um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20 23. mars 1991)
- Stefnuvottur (81. gr. [11] laga um meðferð einkamála nr. 91 31. desember 1991)
- Stofnendur vátryggingafélags (14. gr. [12] laga um vátryggingastarfsemi nr. 60 11. maí 1994)
- Stjórnarmenn í lífeyrissjóði (31. gr. [13] laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129 23. desember 1997)
- Stjórnarmenn í verðbréfamiðstöð (4. gr. [14] laga um rafræna eignarskráningu verðbréfa nr. 131 23. desember 1997)
- Stjórnarmenn í kauphöll (5. gr. [15] laga um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða nr. 34 21. apríl 1998)
- Framkvæmdarstjóri hlutafélags (7. gr. [16] laga um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða nr. 34 21. apríl 1998)
- Stjórnarmenn og forstjóri (6. gr. [17] laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87 16. júní 1998)
- Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri (4. gr. [18] laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98 27. desember 1999)
- Kjörgengni til kosningar til Alþingis (4. gr. [19] laga um kosningar til Alþingis nr. 24 16. maí 2000)
- Skattstjóri (85. gr. [20] laga um tekjuskatt og eignarskatt nr. 90 7. maí 2003)
- Forseti Íslands
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Lög um kosningar til Alþingis nr. 24 16. maí 2000.
- 34. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 24 16. maí 2000.