Neðri-Karpatía (hérað)
Útlit
(Endurbeint frá Województwo podkarpackie)
Neðri-Karpatía (pólska: województwo podkarpackie) er hérað í Suður-Póllandi. Það var stofnað þann 1. janúar 1999 við sameiningu nokkurra eldri héraða. Stærsta borgin í héraðinu og höfuðborg þess er Rzeszów. Árið 2011 voru íbúar héraðsins 2.022.000 samtals. Flatarmál héraðsins er 17.844 ferkílómetrar.