Podlasía (hérað)
Útlit
Podlasía (pólska: województwo podlaskie) er hérað í Norðaustur-Póllandi. Það var stofnað þann 1. janúar 1999 við sameiningu nokkurra eldri héraða. Stærsta borgin í héraðinu og höfuðborg þess er Białystok. Árið 2011 voru íbúar héraðsins 1.200.000 samtals. Flatarmál héraðsins er 20.180 ferkílómetrar.