Úfa
Úfa (rússneska: Уфа́) er borg og höfuðborg Lýðveldisins Basjkortostan, sem er hluti Rússneska sambandsríkisins. Borgin er ein af stærstu borgum Rússlands. Hún er miðstöð stjórnmála, stjórnsýslu, efnahags menningar lýðveldisins.
Staðsetning
[breyta | breyta frumkóða]Úfa er staðsett í austast í Evrópu undir Úralfjöllum við mörk Asíu. Hún liggur við mót ánna Belaya og Úfa, syðst undir láglendi vestanverðra Úralfjalla.
Saga og efnahagur
[breyta | breyta frumkóða]Borgin var byggð að skipan Ívans grimma árið 1574 sem virki til að vernda viðskipti leið yfir Úralfjöllin frá Kazan. Árið 1802 varð borgin höfuðstaður Bashkíríu (síðar Lýðveldið Basjkortostan).
Úfa stækkaði ört á 20. öld og með margvíslega iðnaðframleiðslu. Árið 1956 sameinaðist Úfa nágrannaborginni Chernikovsk, og varð þá miðstöð olíuframleiðslu á Volga-Úral svæðinu. Þar er einnig ýmis efnaiðnaður, timburframleiðsla og miðstöð öflugrar landbúnaðarframleiðslu lýðveldsins.
Úfa er miðstöð járnbrautar- og vegasamgangna á svæðinu. Í borginni eru mikilvæg menningarsetur með nokkrum öflugum háskólum, tæknistofnunum og fjölmörgum rannsóknastofnana.
Íbúar
[breyta | breyta frumkóða]Áætlaður fjöldi borgarbúa er um 1.5 milljón, meirihluti þeirra eru Rússar (54% Rússar). Á síðari árum hefur fólki af öðru þjóðerni fjölgað einkum Bashkírum og Tatörum. Önnur þjóðerni eru Sjúvas, Mari, Úkraínumenn, Mordvinia, Azerar, Armenar, Hvít-rússar, Kazakar, Víetnamar, Lettar, Þjóðverjar og Gyðingar.
Fjarlægðir
[breyta | breyta frumkóða]Fjarlægð Úfa frá Moskvu er 1567 km. með lest og 1357 km. með bíl. Það tekur 32 klst. að aka frá frá Moskvu en 2 klst. að fljúga. Borgin er á tímabelti Yekaterinburg (YEKT/YEKST) eða á samræmdum alþjóðatíma UTC+5)
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]-
Á ánni Belaya eru margvíslegar ferjur og bátar.
-
Úfaborg nútímans.
-
Frá Lenín-götu sem er ein megingata borgarinnar.
-
Í Basjkortostan eru olíulindir. Ríkið rekur sérstakan Olíutækiháskóla í Úfa sem þykir sterk akademísk stofnun í Rússlandi.
-
Basír leikhúsið sem tileinkað er baskírskum leikverkum. Það er eitt sex leikhúsa borgarinnar.
-
Baskírski ríkisháskólinn. í Úfa eru 21 háskólastofnanir á vegum ríkisins og 6 einkareknar.
-
Ríkistrú Basjkortostan er múslimatrú. Hér er þekktasta moska Úfa kennd við túlípana.
-
Úr Lenín-garðinum. Ein margra Lenínstytta lýðveldisins.
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Lýðveldið Basjkortostan