Katrínarborg
Útlit
(Endurbeint frá Yekaterinburg)
Katrínarborg eða Jekaterínbúrg (rússneska: Екатеринбу́рг) er borg og stjórnsýslumiðstöð Sverdlovsk-fylkis í Rússneska sambandsríkinu.
Borgin er staðsett við ána Iset, austur af Úralfjöllum og er 1.420 kílómetrum austur af Moskvu. Katrínarborg var stofnuð 18 nóvember 1723 og nefnd í höfuðið á Katrínu 1. keisaraynju. Hún er fjórða stærsta borg Rússlands, en í henni býr rúmlega ein og hálf milljón manna (2018). Borgin hét Sverdlovsk frá 1924 til 1991, í höfuðið á sovéska byltingarmanninum Jakov Sverdlov.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Yekaterinburg“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 18. febrúar 2019.