Thora Friðriksson
Útlit
Frk. Thora Friðriksson (fullt nafn: Thora Frederikke Halldórsdóttir Friðriksson) (22. maí 1866 – 18. apríl 1958) var rithöfundur minningarbóka og höfundur einna fyrstu kennslubókar í frönsku á íslensku. Hún var einnig einn af helstu hvatamönnum að stofnun Alliance française á Íslandi 1911 og lengi heiðursforseti þess. Hún var sæmd heiðursmerkjum Frakklandsstjórnar, þ.e. Officier d'Académie (1909), Officier de l'Instruction publique (1926) og Chevalier de la Légion d'honneur (1928). Hún var einnig aðsópsmikil í bæjarmálum Reykvíkinga og kvennadeild Slysavarnarfélags Íslands. [1]
Hún var dóttir Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara og konu hans Charlotte Karoline f. Degen, danskrar ættar, sem andaðist á Íslandi 1911.
Bækur Thoru
[breyta | breyta frumkóða]- Skólamaðurinn heima - [frásögn af Halldóri Kr. Friðrikssyni yfirkennara, föður hennar] - útg. 1950
- Dr. Jean Baptiste Charcot - útg. 1947
- Dr. Grímur Thomsen - útg. 1944
- Kennslubók í frönsku: handa börnum - útg. 1934
- Lítil kennslubók í dönsku handa barnaskólum - útg. 1900
- Stutt landafræði handa byrjendum - útg. 1897