Testament (hljómsveit)
Testament er bandarísk þrass-sveit sem stofnuð var í Berkeley, Kaliforníu árið 1983. Hljómsveitin hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar á ferli sínum en gítarleikarinn Eric Peterson hefur verið með frá upphafi og söngvarinn Chuck Billy frá 1986.
Testament naut nokkurra vinsælda frá 1988-1992 og fór í tónleikaferðalag með Iron Maiden, Black Sabbath, Anthrax, Megadeth, Overkill, Judas Priest og Slayer. Árið 1992 kom út platan The Ritual þar sem sveitin fór í melódískari átt en næstu ár vék sveitin sér meir að því að blanda dauðarokki við þrass.
Á 10. áratugi 20. aldar dvínuðu vinsældir sveitarinnar og ekki bætti úr skák að Billy greindist með krabbamein um aldamót. Eftir 2008 var sveitin mjög virk og gaf út fjölda platna.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Eric Peterson – gítarar og bakraddir (1983–)
- Alex Skolnick – gítar og bakraddir (1983–1993, 2001, 2005–)
- Chuck Billy – söngur (1986–)
- Steve DiGiorgio – bassi (1998–2004, 2014–)
- Chris Dovas - trommur (2023-)
Fyrrum meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Gene Hoglan – trommur (1997, 2011–2022)
- Greg Christian - bassi (1983–1996, 2005–2014)
- Steve ,,Zetro" Souza - söngur (1983-1986)
- Dave Lombardo – trommur (1998-1999, 2022-2023)
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- The Legacy (1987)
- The New Order (1988)
- Practice What You Preach (1989)
- Souls of Black (1990)
- The Ritual (1992)
- Low (1994)
- Demonic (1997)
- The Gathering (1999)
- The Formation of Damnation (2008)
- Dark Roots of Earth (2012)
- Brotherhood of the Snake (2016)
- Titans of Creation (2020)
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „Testament (band)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 12. október 2016.