Fara í innihald

Sýrustig

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sýrustig (hugtakið pH-gildi[1] er notað þegar tala er tilgreind)[1] er í efnafræði mælikvarði fyrir hversu súr vökvi er. Sýrustig er skilgreint sem logrinn af umhverfu styrks vetnisjóna í lausninni.

Gildi frá 0 til 7 tákna súra lausn, þ.e. sýru (því súrari sem gildið er lægra), gildið 7 táknar hlutlausa lausn, og gildi frá 7 og upp í 14 táknar basíska lausn (því basískari sem gildið er hærra).

Mælingar sýrustigs

[breyta | breyta frumkóða]
Túlkun á sýrustigi
Efni pH-gildi
Saltsýra, 10M -1.0
Blýgeymir 0.5
Magasýra 1.5 – 2.0
Sítrónusafi 2.4
Kók 2.5
Edik 2.9
Appelsínusafi 3.5
Tómatsafi 4.0
Bjór 4.5
Súrt regn <5.0
Kaffi 5.0
Te eða venjuleg húð 5.0
Þvag 6.0
Mjólk 6.5
Hreint vatn 7.0
Munnvatn heilbrigðrar manneskju 6.5 – 7.4
Blóð 7.34 – 7.45
Saltvatn 7.7 – 8.3
Handsápa 9.0 – 10.0
Venjulegt ammoníak 11.5
Bleikiefni 12.5
Natríumhýdroxíð 13.5

Mæla má sýrustigið með því að:

  • bæta sýrustigsvísinum við upplausnina á meðan fylgst er með. Litur vísisins getur til kynna sýrustigið.
  • nota sýrumæli
  • nota sýrustigspappír sem breytir um lit eftir því hve súr upplausnin er

Þar sem sýrustigsskalinn er á lograskala byrjar hann ekki á núlli.

  • Sören Sörenson (2003). Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi. Mál og menning.
  1. 1,0 1,1 Ritað með skiptistriki (-) samkvæmt hugtakasafni þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins[óvirkur tengill]
    Athugasemd — Þýðingin „sýrustig“ er notuð þegar engin tala er tilgreind en með tölum er talað um „pH-gildi“.
  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.