Sveitarfélagið Klakksvík
Upplýsingar | |
Land | Danmörk |
Sjálfstjórnunarhérað | Færeyjar |
Sýsla | Norðureyjasýsla |
Flatarmál – Samtals |
3. sæti 113 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
2. sæti 4.817 (2011) 42,63/km² |
Borgarstjóri | Gunvá við Keldu |
Stjórnsýsla | Klakksvík (11 fulltrúar) |
Opinber vefsíða |
Sveitarfélagið Klakksvík er sveitarfélag í Norðureyjasýslu í Færeyjum. Það nær yfir Svíney, norðurhluta Karlseyjar og megnið af Borðey. Þéttbýliskjarnar eru 6 talsins. Á Borðey er Klakksvík, Árnafjörður og Ánir. Á Karlsey er Miklidalur og Tröllanes. Á Svíney er samnefnt þorp, Svíney. Sveitarfélagið nær að endamörkum Sveitarfélagsins Hvannasunds á Borðey og endamörkum Sveitafélagsins Húsa á Karlsey. Íbúafjöldi sveitarfélagsins er 4.817 (2011).
Saga
[breyta | breyta frumkóða]1850 var Færeyjum skipt í 8 sýslur og Klakksvík var með hinum Norðureyjunum. Við konungskipunina 1873 var megnið af sveitarfélögum Færeyja stofnuð, öll nema Sveitarfélagið Þórshöfn sem hafði verið stofnað árið 1866. 1860 var íbúafjöldinn 200. Íbúafjöldinn tók að aukast og árið 1908 var íbúafjöldinn orðinn 700.
11. júní 2007 var ákveðið að Svíney yrði sameinuðuð sveitafélaginu eftir sveitarfélagskosningarnar. Svíney varð formlega hluti af sveitarfélaginu 1. janúar 2009.
Stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Síðustu kosningar í sveitarfélaginu voru 11. nóvember 2008. Sjálfstjórnarflokkurinn og Fólkaflokkurinn mynduðu merihluta. Gunvá við Keldu úr Fólkaflokknum er borgarstjóri og varaborgarstjóri er Jógvan Skorheim úr Sjálfstjórnarflokknum.
Sveitarfélagið Klakksvík | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Listar | Av | Av% | Ft | (Ft) | Δ | |
' | Fólkaflokkurinn | 1.199 | 41,4 | 5 | ||
' | Þjóðveldisflokkurinn | 561 | 19,3 | 3 | ||
' | Jafnaðarflokkurinn | 513 | 17,7 | 2 | ||
' | Sambandsflokkurinn | 324 | 11,2 | 1 | ||
' | Sjálfstjórnarflokkurinn | 295 | 10,2 | 1 | ||
' | Aðrir og utan flokka | |||||
Alls | 2.892 | 100 | 11 | |||
Á kjörskrá | Kjörsókn |
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Klaksvíkar kommuna“ á færeysku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. apríl 2011.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Klaksvíkar kommuna“ á norsku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. apríl 2011.