Sveitarfélagið Þórshöfn
Upplýsingar | |
Land | Danmörk |
Sjálfstjórnunarhérað | Færeyjar |
Sýsla | |
Flatarmál – Samtals |
1. sæti 173 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
1. sæti 22,878 (2011) 0,13/km² |
Borgarstjóri | Heðin Mortensen |
Stjórnsýsla | Þórshöfn (Færeyjum) (13 fulltrúar) |
Opinber vefsíða |
Sveitarfélagið Þórshöfn er sveitarfélag í Straumeyjarsýslu. Það nær yfir suðurhluta Straumeyjar og aðliggjandi smáeyjar. Þéttbýliskjarnar eru 18 talsins og stærstir þeirra eru Hoyvík, Argir og Þórshöfn. Sveitarfélagið nær að endamörkum Sveitarfélagsins Sunda og Sveitarfélagsins Kvívík í norðri. Íbúafjöldi sveitarfélagsins er 22.878 (2022).
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Þórshöfn er gamall staður frá landnámi. Þá var haldið höfuðþing færeyinga á Tinganesi. Þórshöfn liggur í miðju eyjanna og með þingsetunni gerðist Þórshöfn viðskiptamiðstöð færeyja. Á nesinu voru geymsluhús og verkunarhús og hér fór allur vöruflutningur frá Færeyjum til annara landa. Á nesinu og á ströndum Eystaruvág var byggðin. Íbúafjöldinn fór að aukast og var orðinn 850 þegar einokunarverslunin var afnumin 1856. En staðurinn hafði ekki eigið stjórsýsluvald og var ekki bær og heyrði því beint undir danska ríkið þegar lögþingið var aflagt á árunum 1816-1852.
Sveitarfélagið var stofnað 16. febrúar 1866, þegar Þórshöfn varð höfuðborg Færeyja. Til hennar tilheyrði syðsti hluti Straumeyjar og eyjarnar Húsagarður og Álaker. Fimm menn eru í bæjarstjórn sveitarfélagsins. Nágrannabæir Þórshafnar, Argir og Hoyvík eru samvaxnir bænum. Sveitarfélagið Kollafjörður sameinaðist Þórshöfn árið 2001 og sveitarfélögin Hestur, Kirkjubøur og Nólsoy sameinuðust sveitarfélaginu í janúar 2005.
Stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Sjö nefndir eru í sveitarfélaginu: sjávarútvegsnefnd, félagsmálanefnd, tækninefnd, skipulags- og byggingarnefnd, menntanefnd, heilbrigðisnefnd og hafnamálanefnd. Þingið var fyrst valið af almenningi árið 1908.
Síðustu kosningar í sveitarfélaginu voru 11. nóvember 2008. Allir flokkar nema Sjálfstjórnarflokkurinn, Miðflokkurinn og Grundstykkjalistinn komust inn á þing. Borgarstjóri sveitarfélagsins er Heðin Mortensen fyrir Jafnaðarflokkurinn.
Sveitarfélagið Þórshöfn | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Listar | Av | Av% | Ft | (Ft) | Δ | |
' | Fólkaflokkurinn | 2.257 | 22,0 | 3 | ||
' | Þjóðveldisflokkurinn | 2.670 | 26,1 | 4 | ||
' | Jafnaðarflokkurinn | 3.289 | 32,1 | 5 | ||
' | Sambandsflokkurinn | 1150 | 11,2 | 1 | ||
' | Sjálfstjórnarflokkurinn | 539 | 5,3 | 0 | ||
' | Miðflokkurinn | 234 | 2,3 | 0 | ||
' | Grundstykkjalistinn | 76 | 0,7 | 0 | ||
' | Aðrir og utan flokka | |||||
Alls | 100 | 13 | ||||
Á kjörskrá | Kjörsókn |
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Tórshavnar kommuna“ á færeysku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. apríl 2011.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Tórshavnar kommuna“ á norsku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. apríl 2011.