Survivor (sjónvarpsþáttur)
Survivor eru bandarískir raunveruleikaþættir. Þeir eru byggðir á sænsku þáttarröðinni Expedition Robinson frá árinu 1997. Þættirnir voru frumsýndir þann 31. maí árið 2000 á CBS sjónvarpsstöðinni og árið 2024 var hún á sinni 46. seríu. Kynnir er Jeff Probst.
Survivor þættirnir hafa einnig verið gerðir í mörgum öðrum löndum, svo sem Ástralíu, Belgíu, Frakklandi og víðar.
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Þátturinn sameinar hóp af ókunnugu fólki sem skipt er í einn eða fleiri hópa (yfirleitt kallaðir ættbálkar) á yfirgefnum stað þar sem þau verða að útvega mat, vatn, eld og skjól á meðan þeir keppa í áskorunum til að vinna annað hvort laun eða friðhelgi frá brottvísun úr leiknum á svokölluðu ættbálkaráði. Síðustu tvö eða þrjú sem halda sætum sínum eftir alla 39 dagana þurfa að ganga í augun á dómnefndinni, sem er hópur af síðustu átta eða níu keppendum sem voru kosnir út úr leiknum. Hver og einn einstaklingur í þeirri dómnefnd kýs hver þeim finnst eiga skilið að vinna titilinn "Sole Survivor" og milljón dollara verðlaun.
Velgengni
[breyta | breyta frumkóða]Þættirnir urðu strax mjög vinsælir. Fyrstu ellefu þáttaraðirnar voru meðal tíu mest áhorfðu þættir í Bandaríkjunum. Þeir eru almennt taldir með bestu Bandarísku raunveruleikaþáttunum. Þættirnir hafa oft verið tilnefndir til Emmy verðlauna þar á meðal unnu þeir fyrir "Outstanding sound mixing" árið 2001 "Outstanding special program" árið 2002, og var síðan tilnefndur fjórum sinnum fyrir "Outstanding reality-competition Program" þegar flokkur var kynntur árið 2003. Jeff Probst hefur unnið verðlaun fyrir "Outstanding Host for a Reality or Reality-Competition Program" fjórum sinnum síðan verðlaunin voru kynnt árið 2008. Árið 2007 voru þáttaraðirnar á lista Time tímaritsins á 100 Bestu sjónvarpsþáttum allra tíma.
Þáttaraðir
[breyta | breyta frumkóða]- Survivor: Pulau Tiga (2000) - einnig kallaður Survivor: Borneo - tekin á eyjunni Pulau Tiga í Suður-Kínahafi.
- Survivor: The Australian Outback (2001) - tekin í óbyggðum Ástralíu.
- Survivor: Africa (2001) - tekin í eyðimörk í Kenýa.
- Survivor: Marquesas (2002) - tekin á eyjunni Nuku Hiva í Markesaseyjaklasanum í Frönsku Pólýnesíu.
- Survivor: Thailand (2002) - tekin á Taílandi.
- Survivor: The Amazon (2003) - tekin í regnskógi við Amasónfljót í Brasilíu.
- Survivor: Pearl Islands (2003) - tekin á Perlueyjum undan strönd Panama.
- Survivor: All-Stars (2004) - líka tekin á Perlueyjum.
- Survivor: Vanuatu (2004) - tekin í eyjaklasanum Vanúatú í Suður-Kyrrahafi.
- Survivor: Palau (2005) - tekin í eyjaklasanum Palá í Kyrrahafi.
- Survivor: Guatemala (2005) - tekin í Yaxha-þjóðgarðinum í Gvatemala. Þáttaröðin var frumsýnd 15. september 2005.
- Survivor: Panama (2006) einnig kallaður Survivor: Exile island - tekin í Panama í Mið-Ameríku.