Steinunn Kristjánsdóttir
Útlit
Steinunn Jóna Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur, fædd 13. október 1965 á Breiðalæk í V-Barðastrandasýslu. Stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði 1986. Nam fornleifafræði við háskólann í Gautaborg (Fil.kand 1993, Fil.mag 1994, Fil.dr 2004). Hefur m.a. stundað rannsóknir á klausturrústum á Skriðuklaustri frá árinu 2002 (forkönnun sumarið 2000). Prófessor við Þjóðminjasafn Íslands og Háskóla Íslands. Kennslugreinar við sagnfræði- og fornleifafræðiskor HÍ: Inngangur að fornleifafræði, kynjafornleifafræði, vöruframleiðsla og -þróun, félagsleg fornleifafræði, siðfræði og fornleifafræði. Formaður Fornleifafræðingafélags Íslands frá 2002.
Nokkur fræðirit Steinunnar
[breyta | breyta frumkóða]- The Awakening of Christianity in Iceland... (2004) (doktorsritgerð)
- Isländsk arkeologi: Stagnation eller utveckling?...(1993) (BA-ritgerð)
- Sagan af klaustrinu á Skriðu (2012) (fræðirit)
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Steinunnar Geymt 11 mars 2007 í Wayback Machine