Hvítfura
Hvítfura | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hvítfura (fyrir miðju)
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus monticola Douglas ex D. Don | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Strobus monticola (Douglas ex D. Don) Rydb. |
Hvítfura (fræðiheiti Pinus monticola[2][3]) er furutegund ættuð frá fjöllum vestur Bandaríkjanna og Kanada, sérstaklega í Sierra Nevada, Fossafjöllum, Kyrrahafsstrandfjöllum, og norðurhluta Klettafjalla. Tegundin vex að sjávarmáli víða, sérstaklega í Oregon- og Washington-fylkjum. Hún er fylkistré Idaho, og er stundum kölluð Idaho pine.[4]
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Hvítfura (Pinus monticola) er stórt tré, og verður oft 30 til 50 m há og einstöku sinnum að 70 m há. Barrnálarnar eru fimm saman í búnti, með skammlífu slíðri. Þær eru fínsagtenntar, og 5 til 13 sm langar. Könglarnir eru langir og grannir, 12 til 32 sm langir og 3 til 4 sm breiðir (lokaðir), og opnir 5 til 8 sm breiðir; köngulskeljarnar eru grannar og sveigjanlegar. Fræin eru smá, 4 til 7 mm löng með löngum grönnum væng 15 til 22 mm löngum.
Hún er skyld sandfuru (Pinus strobus), en með lengri köngla, lítið eitt langlífari barrnálar (2–3 ár, á móti 1,5–2 árum) með meira áberandi loftaugarákum, og nokkuð þéttara og mjórra vaxtarlagi. Greinarnar eru í reglulegum hvirfingum, ein hvirfing á ári; þetta er áberandi á grönnum trjám sem vaxa þétt saman, á meðan tré sem vaxa stök eru með rúnnaðra form með löngum greinum. Hún er víða ræktuð til skrauts, en hefur verið mikið höggin á útbreiðslusvæðinu áður fyrr.
Ógnir
[breyta | breyta frumkóða]Hvítfura (Pinus monticola) hefur orðið fyrir miklum afföllum vegna ryðsveppsins Cronartium ribicola, sem var óvart fluttur inn frá Evrópu 1909. Skógrækt Bandaríkjanna (United States Forest Service) telur að 90% hvítfuru hafi verið drepin af ryðsveppnum vestur af Fossafjöllum. Stór svæði hafa lagst undir aðrar furur eða aðrar trjátegundir. Sveppurinn hefur einnig drepið mikið af klettafuru utan Kalíforníu. Sveppurinn er ekki eins mikið vandamál í Kaliforníu og hefur mikið af báðum furutegundunum sloppið vel þar.
Þol gegn ryðsveppnum erfist og vegna breytileika hvítfuru eru stöku tré tiltölulega ósködduð af sjúkdómnum. Bandaríska skógræktin er með verkefni um að finna og rækta upp hvítfuru og sykurfuru með þessu þoli. Smáplöntunum hefur svo verið plantað aftur í náttúrunni.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Farjon, A. (2013). „Pinus monticola“. The IUCN Red List of Threatened Species. IUCN. 2013: e.T42383A2976604. doi:10.2305/IUCN.UK.2013-1.RLTS.T42383A2976604.en. Sótt 15. janúar 2018.
- ↑ Douglas ex D. Don, 1832 In: Lambert, Descr. Pinus, ed. 8°, 2: p. s.n. inter 144 et 145.
- ↑ "Pinus monticola". Geymt 16 febrúar 2019 í Wayback Machine Germplasm Resources Information Network (GRIN). Agricultural Research Service (ARS), United States Department of Agriculture (USDA)
- ↑ Moore, Gerry; Kershner, Bruce; Craig Tufts; Daniel Mathews; Gil Nelson; Spellenberg, Richard; Thieret, John W.; Terry Purinton; Block, Andrew (2008). National Wildlife Federation Field Guide to Trees of North America. New York: Sterling. bls. 78. ISBN 1-4027-3875-7.
- US Forest Service Dorena Tree Improvement Center Geymt 19 apríl 2003 í Wayback Machine
Viðbótarlesning
[breyta | breyta frumkóða]- Chase, J. Smeaton (1911). Cone-bearing Trees of the California Mountains. Chicago: A. C. McClurg & Co. bls. 99. LCCN 11004975. OCLC 3477527. LCC QK495.C75 C4, with illustrations by Carl Eytel - Kurut, Gary F. (2009), "Carl Eytel: Southern California Desert Artist", California State Library Foundation, Bulletin No. 95, pp. 17-20 Geymt 23 september 2015 í Wayback Machine retrieved Nov. 13, 2011