Petro Porosjenko
Petro Porosjenko | |
---|---|
Петрo Порошeнко | |
Forseti Úkraínu | |
Í embætti 7. júní 2014 – 20. maí 2019 | |
Forsætisráðherra | Arseníj Jatsenjúk Volodymyr Grojsman |
Forveri | Oleksandr Túrtsjynov (starfandi) |
Eftirmaður | Volodymyr Zelenskyj |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 26. september 1965 Bolhrad, úkraínska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Stjórnmálaflokkur | Evrópsk samstaða |
Maki | Marína Perevedentseva (g. 1984) |
Börn | 4 |
Starf | Viðskiptamaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Petro Oleksíjovytsj Porosjenko (úkraínska: Петро́ Олексі́йович Пороше́нко; fæddur 26. september 1965) er fyrrverandi forseti Úkraínu og sá fimmti sem hefur sinnt því starfi. Hann fór í embætti forsetans 7. júní 2014, en var áður utanríkisráðherra frá 2009 til 2010 og verslunar- og efnahagsráðherra frá 2010 til 2012. Frá 2007 til 2012 var hann líka forstjóri seðlabanka Úkraínu.
Fyrir utan stjórnmál hefur rekið fyrirtæki, en hann á stóran súkkulaðiframleiðanda ásamt öðrum fyrirtækjum. Þess vegna hefur hann hlotið gælunafnið „Súkkulaðikóngurinn“. Hann var kosinn í forsetaembættið 25. maí 2014 með 54% atkvæða.
Porosjenko sóttist eftir endurkjöri árið 2019 en tapaði í seinni umferð kosninganna fyrir gamanleikaranum Volodymyr Zelenskyj. Porosjenko hlaut aðeins um 25 prósent atkvæða.[1]
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Grínistinn sigraði í Úkraínu“. mbl.is. 2019. Sótt 22. apríl 2019.
Fyrirrennari: Oleksandr Túrtsjynov (starfandi) |
|
Eftirmaður: Volodymyr Zelenskyj |