Pastúnar
Útlit
Pastúnar, sögulega kallaðir Afganir, eru þjóðernishópur sem eru í mið- og suður-Asíu. Þeir tala pastú sem er íranskt mál. Fjöldi Pastúna er um 63 milljónir og eru þeir fjölmennastir í suður-Afganistan og norðvestur-Pakistan. Þeir telja 48% af þjóðernisbrotum Afganistan og eru stærsta þjóðarbrotið. Í Pakistan eru þeir það næststærsta með 15-18%. Til eru nálægt 400 ættbálkar innan Pastúna.
Þekktir Pastúnar
[breyta | breyta frumkóða]- Ashraf Ghani, fyrrum forseti Afganistans
- Hamid Karzai, fyrrum forseti Afganistans
- Imran Khan, fyrrum forsætisráðherra Pakistans
- Mohammad Najibullah, fyrrum forseti Afganistans.
- Múhameð Ómar, stofnandi talíbanahreyfingarinnar
- Múhameð Zahir Sja, síðasti konungur Afganistans
- Malala Yousafzai, nóbelsverðlaunahafi 2014