Fara í innihald

Njúton

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skýringarmynd af einu Njútoni.

Njúton (enska newton) er SI-mælieining krafts, táknuð með N. Nefnd eftir breska stærð- og eðlisfræðingnum Isaac Newton. Eitt njúton er sá kraftur sem veldur hröðuninni einum metra á sekúndu á sekúndu þegar hann verkar á hlut með massa eitt kílógramm, þ.e. 1 N = 1 kg m/s2.

Á yfirborði jarðar togar þyngdaraflið í 1 kg hlut með kraftinum 9,8 N, svo þegar hlutur fellur til jarðar er hröðun hans 9,8 m/s2.

Skilgreining

[breyta | breyta frumkóða]

Njúton er stærð krafts sem þarf til að hraða ákveðnu magni af eins kílógramma massa einn meter á sekúndu í öðru.

Newton í undirstöðueiningum:

Yfirfærslur á milli eininga

[breyta | breyta frumkóða]
Þessi SI eining er nefnd eftir Isaac Newton. Eins og með allar aðrar SI einingar, sem eru nefndar eru eftir mönnum, þá er fyrsti stafurinn í tákninu ritaður með hástaf (N). Hinsvegar byrja heiti SI einingar á lágstaf (njúton). Undantekning sem fylgir reglunni er „gráða Celsíus“.
— Sjá The International System of Units, hluta 5.2.