Fara í innihald

Meles Zenawi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Meles Zenawi
መለስ ዜናዊ
Meles Zenawi árið 2012.
Forsætisráðherra Eþíópíu
Í embætti
23. ágúst 1995 – 20. ágúst 2012
ForsetiNegasso Gidada
Girma Wolde-Giorgis
ForveriTamrat Layne
EftirmaðurHailemariam Desalegn
Forseti Eþíópíu
Í embætti
28. maí 1991 – 22. ágúst 1995
ForsætisráðherraTesfaye Dinka
Tamirat Layne
ForveriTesfaye Gebre Kidan
(starfandi)
EftirmaðurNegasso Gidada
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. maí 1955
Adúa, Tígre-héraði, Eþíópíu
Látinn20. ágúst 2012 (57 ára) Brussel, Belgíu
DánarorsökHeilabólga
StjórnmálaflokkurÞjóðfrelsishreyfing Tígra
Lýðræðis- og byltingarhreyfing eþíópísku þjóðarinnar
MakiAzeb Mesfin
Börn3

Meles Zenawi Asres (8. maí 1955 – 20. ágúst 2012), fæddur undir nafninu Legesse Zenawi Asres, var eþíópískur stjórnmálamaður sem stýrði Eþíópíu frá endalokum eþíópísku borgarastyrjaldarinnar til dauðadags, fyrst sem forseti (1991-1995) og síðan sem forsætisráðherra (1995-2012). Meles var leiðtogi Þjóðfrelsishreyfingar Tígra, sem var einn fjögurra aðildarflokka í Lýðræðis- og byltingarhreyfingu eþíópísku þjóðarinnar.

Meles Zenawi fæddist í Tígraí-héraðinu á tíma eþíópíska keisaradæmisins. Hann gekk í Grunnskóla drottningarinnar af Saba og Skóla Wingate hershöfðingja í Addis Ababa og lauk grunnnámi sínu árið 1972. Sama ár hóf hann nám við læknisfræðideild Háskólans í Addis Ababa. Hann hætti námi tveimur árum síðar til að ganga til liðs við Þjóðfrelsishreyfingu Tígra, skæruliðahreyfingu í norðurhluta Eþíópíu sem barðist gegn kommúnísku einræði Derg-stjórnarinnar. Árið 1979 var hann kjörinn leiðtogi stjórnarnefndar hreyfingarinnar og síðan forseti framkvæmdastjórnar hennar. Árið 1989 varð hann forseti Þjóðfrelsishreyfingarinnar og leiðtogi Lýðræðis- og byltingarhreyfingar eþíópísku þjóðarinnar, bandalags hennar við þrjá aðra flokka.

Eftir að Derg-stjórnin leið undir lok þann 28. maí árið 1991 varð Meles Zenawi forseti bráðabirgðastjórnar Eþíópíu til ársins 1995.[1] Hann hóf margvíslegar umbætur á stjórnkerfi landsins, meðal annars með því að leyfa starfsemi stjórnmálaflokka, innleiða trúfrelsi, halda lýðræðislegar kosningar og einkavæða tiltekna iðnaði. Stjórnartíð hans markaðist einnig af aðskilnaði Eritreu frá Eþíópíu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1993 og innleiðingu nýrrar stjórnarskrár árið 1994 sem gerði Eþíópíu formlega að lýðræðislegu sambandslýðveldi. Stjórnskipan landsins var skipt upp milli héraða sem afmörkuð voru á milli þjóðernishópa.

Eftir kosningar árið 1995 varð Meles formlega forsætisráðherra landsins þann 23. ágúst. Hann var endurkjörinn árin 2000, 2005 og 2010.[2] Frá 6. júní 2007 var Meles jafnframt forseti Nýs þróunarsamstarfs Afríkuríkja (NEPAD).

Meles lést þann 20. ágúst árið 2012 eftir að hafa verið lagður inn á gjörgæslu á Saint-Luc-háskólasjúkrahúsið í Woluwe-Saint-Lambert á stórborgarsvæði Brussel í Belgíu.[3][4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Amimo, Uduak (10. ágúst 2005). „Profile: Ethiopian leader Meles Zenawi“. BBC News. BBC. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. desember 2005. Sótt 27. nóvember 2020.
  2. Meles Zenawi, le « dernier empereur d'Éthiopie », Le Figaro, 21 ágúst 2012.
  3. Mort du premier ministre éthiopien, Le Figaro, 21. ágúst 2012.
  4. „Ethiopian PM Meles Zenawi dies after illness“. BBC News. 20.ágúst 2012. Sótt 27. nóvember 2020.


Fyrirrennari:
Tesfaye Gebre Kidan
(starfandi)
Forseti Eþíópíu
(28. maí 199122. ágúst 1995)
Eftirmaður:
Negasso Gidada
Fyrirrennari:
Tamrat Layne
Forsætisráðherra Eþíópíu
(23. ágúst 199520. ágúst 2012)
Eftirmaður:
Hailemariam Desalegn


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum og Afríku er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.