Lageröl
Útlit
(Endurbeint frá Lagerbjór)
Lageröl, lagerbjór eða bara lager (úr þýsku Lager „geymsla“) er fremur ljós bjór sem gerjaður er með lagergeri í kulda („undirgerjaður bjór“). Lageröl er langvinsælsti bjórstíllinn, og er hann drukkinn í meira magni en aðrir stílar hvarvetna. Vinsældir sínar á lageröl meðal annars að þakka aðferð við samfellda gerjun sem nýsjálendingurinn Morton W. Coutts fann upp árið 1953, og sem gerði framleiðslutíma lageröls sambærilegan við framleiðslutíma hefðbundins öls. Helstu afbrigði lageröls eru pilsner, Dortmunder Export og marsbjór (Märzen).