Fara í innihald

Abrútsi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fáni Abrútsi.

Abrútsi (ítalska: Abruzzo) er hérað á Ítalíu með um 1,3 milljónir íbúa (2013). Höfuðstaður héraðsins er L'Aquila. Héraðið á landamæri að Marke í norðri, Latíum í vestri og Mólíse í suðri.

64% af landsvæði héraðsins eru fjöll (Appennínafjöllin). Í héraðinu eru hæstu tindar fjallgarðsins með Gran Sasso (2.912 m). Fjórir þjóðgarðar og nokkur friðlönd eru í fjöllunum.

Kort sem sýnir staðsetningu Abrútsi á Ítalíu.