Jimmy Rogers
Jimmy Rogers | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fæðingardagur | s.1950 | |
Fæðingarstaður | Bandaríkin | |
Hæð | 1.98 m | |
Þyngd | 98 kg | |
Leikstaða | Framherji | |
Háskólaferill | ||
Texas Southern | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | |
1975–1976 | Ármann | |
1 Meistaraflokksferill |
Jimmy Rogers (fæddur s.1950) var bandarískur körfuknattleiksmaður sem gerði garðinn frægan með Ármanni tímabilið 1975-1976. Hann og Curtis Carter, sem samdi við KR sama haust, voru fyrstu erlendu atvinnumennirnir í körfubolta hér á landi. Koma þeirra hleypti nýju lífi í körfuboltann á Íslandi en tilþrif þeirra og litríkir persónuleikar juku áhugan og umfjöllun á körfuboltans og voru þeir tíðir gestir á blaðsíðum dagblaða landsins.[1][2][3]
Æska
[breyta | breyta frumkóða]Rogers fæddist í Thompson í Texas og ólst upp í Houston með sjö systkynum. Hann lék körfubolta með Texas Southern University ásamt liðum í Houston, Argentínu og Mexíkó áður en hann kom til Íslands.[4][5]
Ferill á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Rogers gekk til liðs við Ármann í september 1975 og varð fyrsti erlendi atvinnumaðurinn í körfubolta hér á landi.[6] Fyrst um sinn skrifaði hann undir 3 mánaða samning sem gilti frá 15. september til 15. desember með möguleika á að Ármann framlengdi hann til loka tímabilsins. Megin hugsun Ármenninga var að styrkja liðið vegna komandi leikja þeira við finnska liðið Honka Playboys í Evrópukeppni bikarhafa.[5]
Fyrstu leikir hans hér á landi voru með Ármanni í hinu árlega Reykjavíkurmóti í körfuknattleik. Ármann endaði í öðru sæti á mótinu, á eftir ríkjandi Íslandsmeisturum ÍR[7], og Rogers leiddi mótið í stigaskorun með 113 stig í fimm leikjum, eða 22,6 stig að meðaltali í leik.[8]
Þann 30. október skoraði Rogers 24 stig fyrir Ármann í 65-88 tapi þeirra í fyrri leik sínum á móti Honka Playboys í Evrópukeppninni en Ármenningar réðu illa við Ronnie Canon, bandaríkjamanninn í liði Honka, sem skoraði 33 stig.[9][10]
Fyrsti leikurinn á milli Rogers og Carter var 16. desember og var beðið með mikilli eftirvæntingu.[11] Leikurinn olli ekki vonbrigðum, var æsispennandi og endaði 85-81 Ármanni í vil. En þegar einungis 54 sekúndur voru eftir af leiknum, og staðan jöfn 81-81, þá lenti Carter saman við Rogers og sló hann hnefahöggi í gólfið.[12][13][14] Ljósmyndari Dagblaðsins náði mynd af högginu og endaði það á forsíðu blaðsins daginn eftir[15] ásamt því sem fyrirsögnin á frétt Þjóðviljas hljóðaði "Jimmy vann einvígið — Trukkur hnefaleikana".[16] Báðir leikmennirnir fengu eins leikja bann fyrir slagsmálin frá aganefnd KKÍ og var hótað með 6 leikja banni ef þeir fengju aðra brottvísun. Dómurinn var talsvert gagnrýndur, bæði þar sem hann þótti of stuttur auk þess að hótunin um 6 leikja bann fyrir annað brot, sem myndi líklegast enda feril þeirra hér á landi, átti bara við um þá en ekki aðra leikmenn. Töldu menn hætta á að andstæðingar þeirra myndu reyna að æsa þá upp í tilraun til að fá dómarana til að vísa þeim af velli.[17]
Í lok tímabilsins var það Rogers sem stóð á toppnum en Ármann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sigrað KR í síðasta leik tímabilsins á meðan KR endaði í þriðja sæti, á eftir ÍR í öðru sæti. Rogers endaði í öðru sæti yfir stigahæstu menn deildarinnar, með 365, á eftir Carter sem setti nýtt deildarmet með 451 stigi.[18]
Í bikarkeppninni lagði Ármann Njarðvík að velli, 98-89, og varð Rogers stigahæstur allra á vellinum með 32 stig.[19]
Rogers kom aftur til Ármanns tímabilið eftir.[20] Hann varð aftur stigahæstur á Reykjavíkurmótinu, með 135 stig,[21] en Ármann endaði aftur í öðru sæti, í þetta sinn á eftir KR.[22]
Hann fékk leyfi til að fara tímabundið frá Ármanni í desember, með liðið ósigrað í efsta sæti[23], til að sinna persónulegum erindum í Bandaríkjunum.[24] Eftir miklar vangaveltur um hvort hann kæmi aftur, þá tilkynntu Ármenningar í janúar 1976 að Rogers kæmi ekki aftur til félagsins.[25]
Tölfræði í efstu deild
[breyta | breyta frumkóða]Tímabil | Lið | Leikir | Stig | Stig/leik |
---|---|---|---|---|
1975-76 | Ármann | 13 | 365 | 28,1 |
1976-77 | Ármann | 5 | 101 | 20,5 |
Samtals | 18 | 466 | 25,9 |
Afrek
[breyta | breyta frumkóða]- Íslandsmeistari: 1976
- Bikarmeistari: 1976
- Stigakóngur Reykjavíkurmótsins: 1975, 1976
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sumir hafa kallað mig svartan djöful“. Vísir. 4. nóvember 1976. bls. 4–5. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Vallarstarfsmenn fyrstu meistararnir“. Fréttablaðið. 7. nóvember 2008. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Stefán Kristjánsson (27. febrúar 1988). „Bylting í körfunni“. Dagblaðið Vísir. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Hver er Jimmy Rogers“. Vísir. 4. nóvember 1976. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ 5,0 5,1 „Ármenningar sömdu við einn svartan í nótt!“. Vísir. 10. september 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Ármenningar fá bandarískan risa“. Morgunblaðið. 10. september 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Kjartan L. Pálsson (27. október 1975). „Ármenningar áttu ekki svar við sóknarleik ÍR-inganna“. Vísir. bls. 12–13. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Roger stigahæstur“. Morgunblaðið. 28. október 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Það var aldrei glæta hjá Ármanni í Evrópuleiknum!“. Dagblaðið. 31. október 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Kjartan L. Pálsson (31. október 1975). „Svartur "playboy" gerði draum ármenninga að engu“. Vísir. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Björn Blöndal (16. desember 1975). „Blökkumannaslagur í Höllinni í kvöld“. Vísir. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Trukkur KR-inga vildi hnefaleika í lokin“. Alþýðublaðið. 17. desember 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Blökkumennirnir létu hnefa semja sátt en Ármenningar sigruðu í leiknum 85 - 81“. Morgunblaðið. 18. desember 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Blóðug slagsmál á milli blökkumannanna“. Vísir. 17. desember 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Risaslagur í Laugardalshöll“. Dagblaðið. 17. desember 1975. bls. 1, 12–13. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Jimmy vann einvígið — Trukkur hnefaleikana“. Þjóðviljinn. 18. desember 1975. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Bannmálið dregur dilk á eftir sér“. Morgunblaðið. 17. janúar 1976. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Kjartan L. Pálsson (29. mars 1976). „Ármann braut einveldi ÍR og KR!“. Vísir. bls. "12". Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Bikarinn líka Ármanns“. Dagblaðið. 2. apríl 1976. bls. 12. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Rogers kemur til Ármanns“. Morgunblaðið. 15. september 1976. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Björn Blöndal (28. október 1976). „Jón besta vítaskyttan“. Vísir. bls. 12. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ Björn Blöndal (28. október 1976). „KR-ingar meistarar - en með fyrirvara!“. Vísir. bls. 12–13. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Ármann enn eina ósigraða liðið“. Þjóðviljinn. 14. desember 1976. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Roger kemur aftur“. Morgunblaðið. 14. desember 1976. Sótt 30. júlí 2018.
- ↑ „Símin kominn heim“. Tíminn. 15. janúar 1977. Sótt 30. júlí 2018.