Hornstrandafriðland
Útlit
Hornstrandafriðland er friðland á Hornströndum. Friðlandið var stofnað 1975. Svæðið fór í eyði um 1950 og enginn búið þar síðar né á grenndarsvæðum nema að vitavarsla var í Hornbjargsvita alveg til ársins 1995. Ástæða friðunarinnar var náttúrufar svæðisn sem hafði fengið að þróast óáreitt um langt skeið. Búseta var á svæðinu í næstum ellefu aldir en vélvæðing átti sér aldrei stað með jarðraski, framræslu, túnrækt, vegagerð eða áveituframkvæmdum. Íbúar lifðu á landbúnaði, fiskveiðum og fuglanytjum.
Sumarið 2010 var áætlað að til Hornstranda hafið komið 6300 manns. Dagsferðamenn voru þá 1300 þar af 700 með skemmtiferðaskipum.
Firðir og víkur í Hornstrandafriðlandi
[breyta | breyta frumkóða]Jökulfirðir
- Hrafnsfjörður, nyrðri hlutinn
- Lónafjörður
- Veiðileysufjörður
- Hesteyrarfjörður
Aðalvík til Fljótavíkur
Hornstrandir
- Kjaransvík
- Hlöðuvík
- Hælavík
- Hornvík
- Látravík
- Hrolleifsvík
- Smiðjuvík
- Barðsvík
- Bolungavík
- Furufjörður, nyrðri hlutinn