Helgisaga Ólafs Haraldssonar
Helgisaga Ólafs Haraldssonar eða Helgisaga Óláfs konungs er konungasaga sem fjallar um Ólaf helga Noregskonung. Hún er með köflum nánast samhljóða Elstu sögu Ólafs helga, sem er að miklu leyti glötuð. Sagan er frekar sundurlaus og stirðlega samin og er að nokkru byggð á dróttkvæðum. Í sögunni er Ólafur konungur ekki sveipaður neinum dýrðarljóma, en í lok hennar er sagt frá nokkrum jarteiknum (kraftaverkum) Ólafs, sem eru ástæðan fyrir helgisögu-nafninu. Í sögunni hefur varðveist athyglisverður kveðskapur.
Sagan er varðveitt í einu norsku handriti frá miðri 13. öld eða skömmu fyrr, og er þar heil, sem er óvenjulegt um svo gamalt handrit.
Höfundurinn er ókunnur, en gæti hafa verið Norðmaður. Talið er að sagan sé samin skömmu eftir 1200.
Snorri Sturluson virðist ekki hafa notað hana, þegar hann setti saman Ólafs sögu helga hina sérstöku og Heimskringlu.
Útgáfur
[breyta | breyta frumkóða]- Rudolf Keyser og Carl Richard Unger (útg.): Ólafs saga hins helga, Christiania 1849.
- Oscar Albert Johnsen (útg.): Olafs saga hins helga : efter pergamenthaandskrift i Uppsala universitetsbibliotek, Delagardieske samling nr. 8 II, Kristiania 1922.
- Guðni Jónsson (útg.): Konungasögur 1, Íslendingasagnaútgáfan, Rvík 1957.
- Ljósprentun handrits
- Legendariske Olavssaga : etter Uppsala Universitetsbiblioteks DelaGardieska samlingen nr. 8 II. — Anne Holtsmark gaf út, 1956. Corpus Codicum Norvegicorum Medii Aevi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Guðrún Nordal o.fl. (ritstj.) (1992:452–453). Íslensk bókmenntasaga I, Reykjavík. Mál og menning.
- Bjarni Aðalbjarnarson (útg.) (1941:xiii). Íslensk fornrit XXVI : Heimskringla I. Hið íslenzka fornritafélag.
- Alison Finlay (útg. og þýð.) (2004:9). Fagrskinna, a Catalogue of the Kings of Norway. Brill Academic Publishers. ISBN 90-04-13172-8
- Theodore M. Andersson (2006:14). The Growth of the Medieval Icelandic Sagas, 1180-1280. Cornell University Press. ISBN 0-8014-4408-X
- Fyrirmynd greinarinnar var „Legendary Saga of St. Olaf“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. ágúst 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafs saga hins helga — Útgáfa Keysers og Ungers frá árinu 1849.