Fara í innihald

Handknattleiksárið 1950-51

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Handknattleiksárið 1950-51 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1950 og lauk sumarið 1951. Valsarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki en Fram sigraði kvennaflokki. Íslendingar léku enga landsleiki á tímabilinu.

Karlaflokkur

[breyta | breyta frumkóða]

Valsmenn urðu Íslandsmeistarar á fullu húsi stiga eftir sigur á Ármanni í lokaleik, 12:7. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.

Félag Stig
Valur 10
Ármann 8
Víkingur 6
Fram 4
ÍR 2
Afturelding 0

Afturelding féll í 2. deild.

Tekin var upp keppni í 2. deild. KR fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í 1. deild. Keppt var í þriggja liða deild með einfaldri umferð.

Félag Stig
KR 4
FH 2
ÍA 0

Kvennaflokkur

[breyta | breyta frumkóða]

Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna annað árið í röð. Leikin var einföld umferð í fimm liða deild.

Félag Stig
Fram 8
Ármann 6
KR 3
Haukar 3
Valur 0

Engir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu.