Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2026
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2026 eða HM 2026 verður haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada í júní og júlí 2026. Þetta verður heimsmeistarakeppni númer 23 og sú fyrsta sem haldin verður sameiginlega af fleiri en tveimur löndum. Þátttökuliðum á mótinu verður fjölgað í 48 sem er umtalsverð aukning.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur í gegnum tíðina breytt fram og til baka reglum um með hvaða hætti tryggja skyldi að HM dreifðist milli heimsálfa. Snemma árs 2017 var staðfest að þar sem HM 2018 og 2022 hefðu farið fram í Rússlandi og Katar kæmu boð frá Evrópu og Asíu ekki til álita fyrir keppnina 2026. Að lokum fór svo að einungis tvö boð bárust. Annað frá Norður-Ameríkulöndunum þremur en hitt frá Marokkó í Afríku.
Kosið var á allsherjarþingi FIFA þann 13. júní 2018. Norður-ameríska tilboðið hlaut 134 atkvæði en Marokkó 65. Þrjú lönd sátu hjá en Íranir kusu gegn báðum valkostum. Íslendingar fylgdu öðrum Norðurlandaþjóðum í stuðningi við þriggja ríkja framboðið.