Fara í innihald

Gyula Zsengellér

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Gyula Zsengellér (fæddur 27. desember 1915 í Búdapest, dó 29. mars 1999 á Kýpur) var ungverskur knattspyrnumaður og þjálfari sem hlaut silfurverðlaunin á HM 1954

Ævi og ferill

[breyta | breyta frumkóða]
Gyula Zsengellér.

Gyula Zsengellér fæddist í Cegléd í héraðinu Pest í Ungverjalandi. Hann gekk til liðs við Újpest FC árið 1936 og lék þar í rúman áratug. Á þeim tíma varð hann fjórum sinnum ungverskur meistari. Árið 1947 gekk hann til liðs við ítalska liðið A.S. Roma og var í þeirra herbúðum um tveggja ára skeið. Keppnisferlinum lauk hann í Kólumbíu á árunum 1951 til 1953, en um þær mundir var skammlíf en öflug atvinnumannadeild starfrækt þar í landi.

Zsengellér lék 39 landsleiki á árunum 1936 til 1947 og skoraði í þeim 33 mörk. Hann var markahæstur leikmanna ungverska liðsins á HM 1938 og skoraði fimm mörk. Hann skoraði í öllum fjórum leikjum Ungverja í keppninni nema úrslitaleiknum.

Eftir að Zsengellér lagði skóna á hilluna sneri hann sér að þjálfun. Hann starfaði að langmestu leyti á Kýpur þar sem hann þjálfaði fjölda liða allt til ársins 1979 þegar hann hætti afskiptum af knattspyrnu.

  Þetta æviágrip sem tengist knattspyrnu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.