Fara í innihald

Evripídes

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höggmynd af Evripídesi í safni Vatíkansins.

Evripídes eða Evrípídes (forngríska: ὁ Εὐριπίδης -ίδου; um 480 f.Kr. – 406 f.Kr.) var yngstur stóru harmleikjaskáldanna þriggja (hin voru Sófókles og Æskýlos) sem sömdu fyrir Díonýsosarhátíðina í Aþenu. Í fornöld var talið að hann hefði skrifað 92 verk, en fjögur þeirra eru líklega eftir Kritías. Átján verk eru enn til í heilu lagi, en misstór brot af flestum hinna eru þekkt. Hann er einnig þekktur fyrir að hafa samið Kýklópann, eina satýrleikinn sem enn er til í heilu lagi. Meðal þekktustu verk hans eru harmleikirnir Alkestis, Medea, Elektra og Bakkynjurnar.

Evripídes er frægur fyrir lýsingar sínar á lyndiseinkunnum og skapbrigðum karla og kvenna, enda er mælt að Sófókles hafi sagt: Ég lýsi mönnunum eins og þeir ættu að vera en Evripídes eins og þeir eru.

  • „Getið þið sagt mér frá grískum harmleikjum og harmleikjaskáldunum?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvar er best að finna heimildir um leiklist Forn-Grikkja?“. Vísindavefurinn.
  Þessi fornfræðigrein sem tengist bókmenntum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


Varðveitt leikrit Evripídesar