Evripídes

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höggmynd af Evripídesi í safni Vatíkansins.

Evripídes (forngríska: Ευριπίδης; um 480 f.Kr. – 406 f.Kr.) var yngstur stóru harmleikjaskáldanna þriggja (hin voru Sófókles og Æskýlos) sem sömdu fyrir Díonýsosarhátíðina í Aþenu. Í fornöld var talið að hann hefði skrifað 92 verk, en fjögur þeirra eru líklega eftir Kritías. Átján verk eru enn til í heilu lagi, en misstór brot af flestum hinna eru þekkt. Hann er einnig þekktur fyrir að hafa samið Kýklópann, eina satýrleikinn sem enn er til í heilu lagi. Meðal þekktustu verk hans eru harmleikirnir Alkestis, Medea, Elektra og Bakkynjurnar.

Evripídes er frægur fyrir lýsingar sínar á lyndiseinkunnum og skapbrigðum karla og kvenna, enda er mælt að Sófókles hafi sagt: Ég lýsi mönnunum eins og þeir ættu að vera en Evripídes eins og þeir eru.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist


  Þessi fornfræðigrein sem tengist bókmenntum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


Seated Euripides Louvre Ma343.jpg Varðveitt leikrit Evripídesar