Einar Már Sigurðarson
Útlit
Einar Már Sigurðarson (EMS) | |
Fæðingardagur: | 29. október 1951 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | Samfylkingin |
Þingsetutímabil | |
1999-2003 | í Austurl. fyrir Samf. |
2003-2007 | í Norðaust. fyrir Samf. |
2007-2009 | í Norðaust. fyrir Samf. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2007-2009 | Formaður Íslandsdeildar ÖSE-þingsins |
2009 | Formaður menntamálanefndar |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Einar Már Sigurðarson (f. 29. október 1951 í Reykjavík) er fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar fyrir Norðausturkjördæmi. Foreldrar hans eru Sigurður Guðgeirsson og Guðrún R. Einarsdóttir. Einar Már er giftur Helgu Magneu Steinsson og eiga þau fimm börn: Heiðrún Helga (1971), Jóhann Már (1972), Karl Már (1977), Einar Torfi (1980), Sigurður Steinn (1990). Einar lauk stúdentsprófi 1971, kennaraprófi 1979 og prófi í náms- og starfsráðgjöf 1994. Hann hefur starfað sem kennari, skólastjóri og skólameistari og verið forstöðumaður Skólaskrifstofu Austurlands. Hann sat á Alþingi á árunum 1999-2009.
Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.