Edmond Halley
Útlit
(Endurbeint frá Edmund Halley)
Edmond Halley (8. nóvember 1656 − 14. janúar 1742) var enskur stjörnufræðingur sem er einna þekktastur fyrir að hafa reiknað út sporbaug Halastjörnu Halleys sem nefnd er eftir honum. Á eynni Sankti Helenu gerði hann einnig athuganir á stjörnum á suðurhveli jarðar sem bætti miklu við stjörnukort þess tíma auk þess að gera athuganir á staðvindum og monsúnvindum þar sem hann færði rök fyrir því að hiti sólar hefði áhrif á veðurfar. Eftir að hann sneri aftur til Englands fékkst hann við ýmis viðfangsefni í raunvísindum. Hann kostaði útgáfu höfuðrits Newtons, Principia Mathematica Philosophiae Naturalis, árið 1687. Árið 1720 var hann skipaður konunglegur stjörnufræðingur og hélt þeirri stöðu til dauðadags.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Edmond Halley.