Bretónska
Bretónska Brezhoneg | ||
---|---|---|
Málsvæði | Frakkland | |
Heimshluti | Bretanía | |
Fjöldi málhafa | 210.000 í Bretaníu, 16.000 í Île-de-France | |
Ætt | Indóevrópskt Keltneskt | |
Skrifletur | Latneskt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Ekki viðurkennt samkvæmt frönskum lögum | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | bre
| |
ISO 639-2 | bre
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Bretónska (Brezhoneg) er keltneskt tungumál sem enn er talað á Bretaníuskaga, vestasta hluta Frakklands. Bretónska er náskyld velsku og kornbresku. Bretónska var töluð á öllum Bretaníuskaganum þegar Júlíus Sesar bar að garði, og hún var mál menntamanna og yfirstétta langt fram á miðaldir. Um aldamótin 1900 voru um milljón manns sem aðeins töluðu bretónsku, en nú eru aðeins um 300 þúsund mælendur sem nota málið daglega, en þeir eru allir tvítyngdir.
Með framtaki félagasamtaka og duglegra manna á Bretaníu hefur nú verið unnt að tryggja að kennt er á bretónsku frá forskólastigi til doktorsstigs, en það er í raun gert í trássi við frönsk landslög. Reiknað er með að mælendum fækki (vegna aldurs) til ársins 2010 en upp úr því fari þeim fjölgandi á ný.