Bjarnarlaukur
Útlit
Bjarnarlaukur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Allium ursinum L., 1753 | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Samheiti
|
Bjarnarlaukur (fræðiheiti: Allium ursinum) er villtur ættingi graslauks sem er algengur í Evrópu og Asíu. Heitið er dregið af því að birnir voru taldir sólgnir í laukana. Bjarnarlaukur vex í botni laufskóga og getur myndað gróðurþekju sem angar svipað og hvítlaukur. Laufin eru notuð sem grænmeti.[1][2] Fyrir utan lyktina svipar þeim mjög til blaða lilju vallarins, einnig Arum maculatum, Veratrum viride eða Veratrum album sem eru allar eitraðar.[3] Blómin eru hvít og stjörnulaga og sitja í klasa efst á þrístrendum blómstilk.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Johannes Seidemann (2005). World spice plants. Springer. bls. 27. ISBN 978-3-540-22279-8. Sótt 13. apríl 2011.
- ↑ Institut Fur Pflanzengenetik Und Kulturpflanzenforschung Gatersleben (COR) (11. maí 2001). Mansfeld's Encyclopedia of Agricultural and Horticultural Crops: (Except Ornamentals). Springer. bls. 2251–. ISBN 978-3-540-41017-1. Sótt 13. apríl 2011.
- ↑ Gilotta, Irene; Brvar, Miran (2010). „Accidental poisoning with Veratrum album mistaken for wild garlic (Allium ursinum)“. Clinical Toxicology. 48 (9): 949–952. doi:10.3109/15563650.2010.533675. ISSN 1556-3650. PMID 21171854. S2CID 207657813.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Bjarnarlaukur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Allium ursinum.