Fara í innihald

Bismarck (skip)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bismarck

Bismarck var 50.000 lesta þýskt orrustuskip í seinni heimstyrjöldinni, kennt við járnkanslarann Otto von Bismarck. Kjölurinn var lagður hjá Blohm & Voss skipasmíðastöðinni í Hamborg 1936, en skipið hljóp af stokkunum 1939. Það var tekið í notkun hjá þýska flotanum 24. ágúst 1940. Það sökkti stolti breska flotans, orrustubeitiskipinu HMS Hood, í snarpri sjóorustu vestur af Íslandi 24. maí 1941. Þremur dögum síðar var Bismarck sökkt af Bretum eftir mikinn eltingarleik á Atlantshafi. Fylgdarskip Bismarcks, beitiskipið Prinz Eugen slapp til hafnar í Frakklandi án þess að hafa orðið fyrir skoti.

Systurskip Bismarcks, Tirpitz, er stærsta orrustuskip sem smíðað hefur verið í Evrópu, en það tók aldrei þátt í sjóorrustu.