Auður (tónlistarmaður)
Auður | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Auðunn Lúthersson 9. febrúar 1993 |
Uppruni | Reykjavík, Ísland |
Störf | Tónlistarmaður |
Ár virkur | 2016–í dag |
Ættingjar | Hrafnhildur Lúthersdóttir (systir) |
Stefnur | Popp |
Útgáfufyrirtæki | Sony |
Vefsíða | auduraudur |
Auðunn Lúthersson (f. 9. febrúar 1993), þekktur undir sviðsnafninu Auður, er íslenskur tónlistarmaður. Auður spilaði á dönsku tónlistarhátíðinni Hróarskeldu árið 2019.[1] Á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2020 hlaut Auður þrenn verðlaun; popplag ársins („Enginn eins og þú“), söngvari ársins og flytjandi ársins.[2]
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Árið 2011 var Auðunn í sigurliði Menntaskólans í Reykjavík í rökræðukeppninni Morfís þ.s. umræðuefnið var frjálshyggja.[3] Árið 2014 var leikverkið Heili hjarta typpi eftir Auðunn og frænda hans Ásgrím Gunnarsson[4] frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði[5]. Auður samdi við höfundarrétarfyrirtækið IMAGEM MUSIC árið 2016.[6] Árið 2016 var Auður fyrsti Íslendingurinn til þess að vera valinn í hina margverðlaunuðu akademíu Red Bull Music Academy.[7] Árið 2018 skrifaði Auður undir plötusamning við Sony Music í Danmörku.[8] Auður samdi tónlistina fyrir leikverkið Kópavogskrónika uppúr samnefndri bók Kamillu Einarsdóttur og var frumsýnt árið 2020 í Þjóðleikhúsinu.[9]
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Auður er sonur Lúthers Sigurðssonar meltingarlæknis og Ingibjargar Ragnarsdóttur hjúkrunarfræðings, hann er yngri bróðir sundkonunnar Hrafnhildar Lúthersdóttur.[10] Auður býr nú í Los Angeles þar sem hann starfar við framleiðslu á tónlist.[11]
Útgefið efni
[breyta | breyta frumkóða]Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Alone (2017)
- Afsakanir (2018)
- Útvarp Úlala (2023)
Smáskífur
[breyta | breyta frumkóða]- „I'd Love“ (2017)
- „Enginn eins og þú“ (2019)
- „Just a while“ (2019) ásamt Sturlu Atlas
- „Hún veit hvað ég vil“ (2020) ásamt Mezzoforte
- „Ljós“ (2020)
- „Týnd og einmana“ (2020)
- „Frosið sólarlag“ (2020) ásamt gugusar
- „Fljúgðu burt dúfa“ (2020)
- „Venus“ (2021)
- „Tárin falla hægt“ (2022) ásamt Bubba Morthens
Birtist á
[breyta | breyta frumkóða]- Skólarapp (2017)
- Hvað ef (2018) með GDRN
- This is Icelandic Indie Music Vol. 4 (2018)
- Frá mér til þín (2020) með Ouse
- Í miðjum kjarnorkuvetri (2020) með JóaPé og Króla
Verðlaun
[breyta | breyta frumkóða]- 2018 - Kraumsverðlaunin (Árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs) - Afsakanir
- 2020 - Íslensku tónlistarverðlaunin
- Popplag ársins („Enginn eins og þú“)
- Söngvari ársins
- Flytjandi ársins
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. júlí 2022. Sótt 24. júlí 2022.
- ↑ https://www.mbl.is/folk/frettir/2020/03/11/audur_og_vok_hlutu_flest_verdlaun/
- ↑ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/04/12/mr_vann_morfis/
- ↑ https://www.visir.is/g/20101155447d
- ↑ https://www.ruv.is/frett/heili-hjarta-og-typpi-takast-a
- ↑ https://www.visir.is/g/2016326126d
- ↑ https://www.visir.is/g/2016160309305/demoid-af-plotunni-veitti-inngongu-i-red-bull-music-academy-
- ↑ https://www.visir.is/g/20191834791d
- ↑ https://leikhusid.is/actors/audur/
- ↑ https://www.visir.is/g/2017369710d
- ↑ „Auður leggur land undir fót og er kominn með íbúð í L.A.“. Vísir. 17. febrúar 2023.