1422
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1422 (MCDXXII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Eldgos í sjó undan Reykjanesi. Eyja sem myndaðist í gosinu hélst ofansjávar í nokkur ár.
- Hannes Pálsson og Balthazar van Damme komu til landsins með hirðstjórnarvald. Jón Hallfreðarson ábóti í Þykkvabæjarklaustri kom með þeim en þeir fóru á land í Vestmannaeyjum, Jón sigldi áfram með skipinu sem aldrei kom á áfangastað í Þerneyjarsundi.
- Englendingar hótuðu að taka skreið Íslendinga af þeim með valdi.
- Tveir Englendingar réðust með ofbeldi á kóngsgarðinn á Bessastöðum, særðu þjón Hannesar hirðstjóra með hnífum í kirkjugarðinum og saurguðu þar með kirkjuna.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Hallfreðarson, ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 10. janúar - Hússítastríðin: Hússítar unnu sigur á her konungssinna við Německý Brod í Bæheimi.
- 1. febrúar - Frísneska stríðið endaði með samningum í Groningen. Frísland hlaut sjálfstjórn.
- 11. mars - Stríð braust út á Okinawa-eyju í Japan. Shō Hashi konungur eins konungdæmis á eyjunni hóf árásir á önnur tvö konungsdæmi þar í þeim tilgangi að sameina eyjuna í eitt ríki.
- 21. mars - Hundrað ára stríðið: Englendingar náðu yfirráðum yfir frönsku borginni Meaux eftir 5 mánaða umsátur.
- 1. september - Hinrik 6. varð konungur Englands, níu mánaða að aldri.
- 27. september - Þýsku riddararnir gerðu friðarsamning við Konungsríkið Pólland og Hertogadæmið Litáen eftir 2 mánaða stríð.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Hansasambandið setti verslunarbann á öll Norðurlöndin. Eiríkur af Pommern svaraði með því að loka Eyrarsundi fyrir skipum þeirra.
- Hersveitir Ottómana náðu síðustu leifum ríkis Konstantíns 2. Búlgaríukeisara á sitt vald og dó keisarinn skömmu síðar í útlegð í Serbíu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 8. júlí - Mikaela af Valois, hertogaynja af Búrgund, fyrsta kona Filippusar góða (f. 1395).
- 31. ágúst - Hinrik 5. Englandskonungur (f. 1387).
- 21. október - Karl 6. Frakkakonungur (f. 1369).
- 17. september - Konstantín 2., keisari Búlgaríu (f. eftir 1370).