Borgarastyrjöldin í Súdan (2023–)
Útlit
(Endurbeint frá Átökin í Súdan 2023–)
Borgarastyrjöld geisar í Súdan milli súdanska stjórnarhersins og RSF-uppreisnarhersins aðallega í kringum höfuðborgina Kartúm og í Darfúr-héraði.[1] Átökin brutust út þann 15. apríl 2023 þegar RSF-uppreisnarherinn gerði tilraun til valdaráns í Kartúm en átökin breiddust út um land allt.[2][3] Frá og með 24. júlí 2024 hafa rúmlega 15.000 beðið bana í átökunum.[4]
Tímalína
[breyta | breyta frumkóða]2023
[breyta | breyta frumkóða]- Síðdegis þann 16. apríl var stutt vopnahlé undirritað.[5][6]
- Þann 21. apríl lýsti RSF-uppreisnarherinn yfir þriggja sólarhringa vopnahléi sem tókst ekki.[7][8]
- Þann 24. apríl sömdu stríðandi fylkingar um 72 klukkustunda vopnahlé.[9]
- Þann 22. desember fordæmdi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna útbreiðslu átakanna og ofbeldi gegn almennum borgurum.[10]
2024
[breyta | breyta frumkóða]- í febrúar réðust Hútar í Jemen á og töfðu flutning hjálpargagna til Súdan með skipum á Rauðahafi.[11]
- Þann 10. júní var síðasta starfhæfa sjúkrahúsinu lokað í Darfúr-héraði.[12]
- Þann 14. ágúst verða haldnar vopnahlésviðræður í Sviss.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Diego, Hugrún Hannesdóttir (12. maí 2024). „Fjórar af fimm höfuðborgum í Darfúr á valdi RSF-hersins - RÚV.is“. RÚV. Sótt 28. júlí 2024.
- ↑ „Valdaránstilraun virðist hafin“. www.mbl.is. Sótt 24. apríl 2023.
- ↑ Diego, Hugrún Hannesdóttir (13. nóvember 2023). „Um 700 drepin í átökum í Darfúr - RÚV.is“. RÚV. Sótt 21. janúar 2024.
- ↑ 4,0 4,1 Þórhallsson, Markús Þ (24. júlí 2024). „Bandaríkjamenn bjóða stríðandi fylkingum til vopnahlésviðræðna - RÚV.is“. RÚV. Sótt 28. júlí 2024.
- ↑ Diego, Hugrún Hannesdóttir; Þórðarson, Oddur (16. apríl 2023). „Stutt vopnahlé í Súdan og óvissa með framhald átaka - RÚV.is“. RÚV. Sótt 24. apríl 2023.
- ↑ „Þriggja klukkustunda vopnahlé í Súdan“. www.mbl.is. Sótt 24. apríl 2023.
- ↑ Þórhallsson, Markús Þ (21. apríl 2023). „Uppreisnarsveitir RSF lýsa yfir vopnahléi - RÚV.is“. RÚV. Sótt 24. apríl 2023.
- ↑ „Yfir 400 drepnir og 3.500 særst“. www.mbl.is. Sótt 24. apríl 2023.
- ↑ Birgisdóttir, Gunnhildur Kjerúlf (24. apríl 2023). „Semja um 72 klukkustunda vopnahlé í Súdan - RÚV.is“. RÚV. Sótt 25. apríl 2023.
- ↑ Diego, Hugrún Hannesdóttir (23. desember 2023). „Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir útbreiðslu átaka í Súdan - RÚV.is“. RÚV. Sótt 21. janúar 2024.
- ↑ Diego, Hugrún Hannesdóttir (18. febrúar 2024). „Árásir Húta tefja flutning hjálpargagna til Súdan - RÚV.is“. RÚV. Sótt 3. ágúst 2024.
- ↑ Indriðason, Hallgrímur (10. júní 2024). „Síðasta sjúkrahúsinu í Darfur lokað - RÚV.is“. RÚV. Sótt 28. júlí 2024.