Ármann Jakobsson
Ármann Jakobsson (f. 18. júlí 1970) er prófessor í íslensku og rithöfundur.
Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, lauk svo BA-prófi frá Háskóla Íslands 1993 og MA-prófi 1996. Lauk svo doktorsprófi frá HÍ 2003. Frá því í júlí 2011 hefur hann gegnt stöðu prófessors við íslensku-og menningardeild Háskóla Íslands. Systir hans er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Á menntaskólaárum sínum komst hann ásamt tvíburabróður sínum Sverri þrisvar í úrslit í Gettu betur og sigraði í þeirri keppni 1990. Árið 1989 var hann í ræðuliði skólans sem sigraði í Morfís-ræðukeppninni. Árið 2001 var Ármann dómari í Gettu betur.
Ármann hefur sent frá sér nokkrar bækur m.a, skáldsögur, barnabækur og fræðibækur.
Ármann hefur sérhæft sig í miðaldabókmenntum og ásamt fræðiskrifum og fræðistörfum var hann kennari við Menntaskólann í Reykjavík 2002-2008. Um vorið 2011 kom út í ritröðinni Íslenzk fornrit hjá Hinu íslenska fornritafélagi konungasagnaritið Morkinskinna í tveimur bindum en Ármann sá um útgáfuna ásamt Þórði Inga Guðjónssyni.
Skáldsögur
[breyta | breyta frumkóða]- 2008 - Fréttir frá mínu landi. Óspakmæli og örsögur
- 2008 - Vonarstræti
- 2011 - Glæsir
- 2017 - Brotamynd
- 2018 - Útlagamorðin
- 2019 - Urðarköttur
- 2020 - Tíbrá
- 2021 - Bróðirinn
- 2022 - Risinn
- 2023 - Ófreskjan
Barnabækur
[breyta | breyta frumkóða]- 2014 - Síðasti galdrameistarinn
- 2019 - Bölvun múmíunnar
Fræðibækur
[breyta | breyta frumkóða]- 1997 - Í leit að konungi: Konungsmynd íslenskra konungasagna
- 2002 - Staður í nýjum heimi: Konungasagan Morkinskinna
- 2003 - Tolkien og hringurinn
- 2009 - Illa fenginn mjöður: Lesið í miðaldatexta
- 2009 - Bókmenntir í nýju landi: Íslensk bókmenntasaga frá landnámi til siðaskipta
- 2013 - Icelandic Literature of Vikings: An Introduction
- 2014 - Íslendingaþættir: Saga hugmyndar
- 2017 - The Troll Inside you: Paranormal Activity in the Medieval North.