Wacken
Wacken er þorp í Þýskalandi, nánar tiltekið í Steinburg-héraði í Schenefeld-amti í Holtsetalandi. Þar búa um 2110 manns (2023). Bæjarstjórinn heitir Axel Kunkel. Póstnúmerið er 25596 og svæðisnúmerið er 04827. Í grennd við þorpið er bærinn Itzehoe.
Wacken er fyrst getið í heimildum árið 1148, en þar hafa fundist mun eldri mannvistarleifar.
Wacken Open Air
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1989 var þungarokkshátíðin Wacken Open Air haldin í fyrsta skipti og hefur verið haldin á hverju ári síðan. Hún er haldin fyrstu helgina í ágúst og er ein stærsta þungarokkshátíð heims, með yfir 80.000 gesti á ári. Síðan árið 2000 hafa Íslendingar sótt hana í hópum og íslensk þungarokksbönd spilað þar. Guðni Th. Jóhannesson þáverandi forseti, heimsótti hátíðina árið 2023 en þá spiluðu fjórar íslenskar sveitir þar.