Heimsráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun
Heimsráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun (líka nefnd Umhverfisráðstefnan í Ríó) var stór ráðstefna sem haldin var á vegum Sameinuðu þjóðanna í Rio de Janeiro í Brasilíu 3. til 14. júní árið 1992. Tilgangur ráðstefnunnar var að ræða eiturefni í framleiðslu, sjálfbæra orkukosti og hvernig hægt væri að draga úr loftmengun í borgum og takast á við vaxandi vatnsskort. Ein mikilvæg niðurstaða ráðstefnunnar var Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem leiddi til Kýótóbókunarinnar fimm árum síðar.
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (stundum kölluð Rio+20) var líka haldin í Rio árið 2012.
Niðurstöður
[breyta | breyta frumkóða]Ráðstefnan í Rio leiddi til eftirfarandi samþykkta:
Að auki voru eftirfarandi alþjóðasamningar opnaðir fyrir undirskriftir:
- Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni
- Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar
- Samningur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun