Tove Jansson
Tove Marika Jansson (9. ágúst 1914 – 27. júní 2001) var finnlandssænskur rithöfundur, listmálari og teiknari, fædd í Helsinki. Hún var komin af listafólki en móðir hennar var sænska listakonan, Signe Hammarsten-Jansson og faðir hennar finnski myndhöggvarinn Viktor Jansson. Hún er þekktust fyrir bækur sínar um Múmínálfana, þó skrifaði hún einnig aðrar bækur ásamt því að myndskreyta bækur eftir aðra. Til dæmis myndskreytti hún bæði Hobbitann eftir J.R.R. Tolkien og Ævintýri Lísu í Undralandi eftir Lewis Carroll.
Starfsævi hennar náði yfir meira en 70 ár. Í bókum hennar má finna mikið af vísunum í líf hennar og sögupersónur hennar eru sumar byggðar á raunverulegum persónum í lífi hennar. Tove bjó í áratugi með konu, en samkynhneigð var bönnuð með lögum í heimalandi hennar þar til árið 1971. Sambýliskona hennar var Tuulikki Pietilä, teiknari og prófessor, en í Tikka-tú í Múmínálfunum þykjast menn sjá hennar stað.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var að hluta til „Tove Jansson“ á sænsku útgáfu Wikipedia. Sótt desember 2012.