Fara í innihald

Thích Quảng Đức

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Thích Quảng Đức
Fæddur
Lâm Văn Túc

1897
Dáinn11. júní 1963 (65–66 ára)
ÞjóðerniVíetnamskur
TrúBúddismi

Thích Quảng Đức (189711. júní 1963 í Saigon í Víetnam) (quốc ngữ: Thích Quảng Đức; Chữ Nôm: 釋廣德) var búddamunkur frá Huế í Víetnam sem framdi sjálfsmorð með sjálfsíkveikju á miðdegi 11. júní 1963 á fjölförnum gatnamótum í Saigon í Víetnam til að mótmæla kúguninni sem búddistar þurftu að þola undir stjórn forseta landsins, Ngô Đình Diệm, sem var kaþólskrar trúar. Forsetafrú hans, Ngô Đình Nhu, hafði það að segja um atburðinn að hún myndi klappa sæji hún aðra „munkagrillsýningu“, þessi ummæli urðu til þess að hún fékk viðurnefnið „drekakonan“.

Ástæður fyrir sjálfsíkveikjunni

[breyta | breyta frumkóða]

Thích Quảng Đức hafði undirbúið sig fyrir sjálfsíkveikjuna með hugleiðslu um nokkurra vikna skeið og útskýrt ástæðurnar fyrir henni í bréfum til búddistasamfélagsins og ríkisstjórnar Suður-Víetnam. Í þessum bréfum útskýrði hann löngun sína til að vekja athygli á kúgun búddasamfélagsins af hálfu ríkisstjórnar Ngô Đình Diệm. Í bréfi til ríkisstjórnarinnar hafði hann beðið hana að:

  • Afnema bannið á búddistafánanum.
  • Veita búddisma sömu réttarstöðu og kaþólskri trú.
  • Hætta að hafa búddista í haldi.
  • Veita búddamunkum og nunnum rétt til að iðka og boða trú sína.
  • Veita fjölskyldum fórnarlambanna bætur og refsa þeim sem báru ábyrgð á dauða þeirra.

Ríkisstjórnin varð ekki við þessum beiðnum, sem varð til þess að Thích Quảng Đức framdi sjálfsíkveikju sína. Eftir dauða hans var hann endurbrenndur og sagt er að hjarta hans hafi ekki viljað brenna, fyrir vikið er það talið heilagt.

Áhrif í menningu

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 1992 notaði rokkhljómsveitin Rage Against The Machine myndina á umslagi samnefndrar frumraunar þeirra.

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Thích Quảng Đức“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 26. október 2005.
  • „Self-Immolation of Thich Quang Duc“. Sótt 26. október 2005.