Sjóendur
Útlit
Sjóendur eða fiskiendur (fræðiheiti Merginae) eru andartegundir sem lifa flestar á sjó utan varptíma og lifa á norðlægum breiddargráðum. Þær eru allar kafendur og lifa á ýmiss konar hryggleysingjum. Nokkrar tegundir sjóenda verpa við Ísland. Þessar tegundir verpa við Ísland:
- Æðarfugl
- Hrafnsönd er sú eina svokallaðra svartanda (ættkvíslin Melanitta) sem verpur á Íslandi. Blikinn er hrafnsvartur og hljóð tegundarinnar minnir á krunk í hrafni.
- Hávella dregur nafn sitt af ómfögrum hljóðum fuglsins. Hávella skiptir litum eftir árstíðum.
- Húsönd verpa við Mývatn og í Veiðivötnum. Í Norður-Ameríku verpa þær í stórum trjám en hérlendis verpir tegundin í gjótum eða útihúsum.
Tvær tegundir svonefndra fiskianda (ættkvísl Mergus) á Íslandi, þ.e. sjóendur sérhæfðar að fiskiáti eru:
Vetursetu á Íslandi hafa: