Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra
Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra | |
---|---|
Leikstjóri | Ævar Kvaran |
Handritshöfundur | Loftur Guðmundsson |
Framleiðandi | Óskar Gíslason |
Leikarar | |
Frumsýning | 19. október, 1951 |
Tungumál | íslenska |
Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra er leikin íslensk gamanmynd í fullri lengd eftir Óskar Gíslason. Leikstjóri var Ævar Kvaran. Kvikmyndin fjallar um Bakkabræður sem komast í kynni við þrjár stúlkur úr Reykjavík. Þær bjóða þeim að heimsækja sig í borgina. Þeir aka þangað á gömlum traktor og lenda í vandræðum í umferðinni í borginni. Loks komast þeir heim til stúlknanna þar sem þeir reyna meðal annars að strokka smjör í þvottavél. Ævintýrið endar með því að þeir sjá stúlkurnar á leikæfingu í Þjóðleikhúsinu, halda að það sem gerist á sviðinu sé raunverulegt og reyna að bjarga þeim, með þeim afleiðingum að þeim er hent út með harðri hendi.
Kvikmyndin var sýnd í Stjörnubíói við Laugaveg og önnur stutt kvikmynd eftir Óskar, Töfraflaskan, sýnd með sem aukamynd.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Ný íslensk kvikmynd: „Reykjavíkurævintýri Bakkabræðra“; frétt í Morgunblaðinu 1951
- Um myndina á Kærleikssíðu Júlla Geymt 7 október 2007 í Wayback Machine