Rainer Maria Rilke
Útlit
(Endurbeint frá Rainier Maria Rilke)
Rainer Maria Rilke (4. desember 1875 – 29. desember 1926) er eitt af helstu skáldum þýskrar tungu á 20. öld. Hann fæddist í Prag í Bæheimi sem þá var hluti Austurríkis-Ungverjalands. Rilke orti bæði á bundnu máli og óbundnu og er stundum talinn með módernistum. Rilke er meðal annars þekktur fyrir Dúínó-tregaljóðin sem Kristján Árnason þýddi á íslensku. Rilke skrifaði einnig yfir 400 ljóð á frönsku.